fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er eins og ég sagði hér áðan, ég held að við gætum þvargað um þetta hér í allt kvöld. Við sjáum þetta ekki með sömu gleraugum og við verðum bara að láta þetta gott heita í bili. Ég ætla ekki að eyða öllum tíma mínum í þetta.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann að er aðeins varðandi aðhaldstillögurnar. Við sáum það þegar aðhaldstillögurnar voru kynntar hér, 109 milljarðar ef ég man rétt í fjármálaáætluninni; kynntar þannig að þær væru fjármagnaðar. Síðan sjáum við í raun og veru að fjármögnunin gengur út á það að það sé búið að setja þetta niður á málefnasvið. Við fáum ráðherrana og við spyrjum: Hvar eru hagræðingartillögurnar? Og þeir segja: Það er óútfært. Þær eru óútfærðar. Sameiningar stofnana eru nefndar í frumvarpinu og við erum búin að ræða sýslumennina, sem er ekki hagræðingaraðgerð. Getur hv. þingmaður frætt okkur um hvaða aðrar sameiningar eru á teikniborðinu?