157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:28]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Aftur þakka ég andsvarið. Það sem mér finnst skipta svolitlu máli varðandi skilninginn á þeirri umgjörð sem búið er að stilla upp varðandi fjármál ríkisins er að þetta eru í raun rammafjárlög fyrir málasviðin og ráðuneytin. Það sem er verið að gera núna, og var tilkynnt í tengslum við fjármálaáætlun í vor, er að í raun er ábyrgð ráðherranna á að skila hagræðingu innan síns ramma meiri en áður. Áður voru litlir varasjóðir innan hvers ráðuneytis, ef ég skil það rétt. Núna þurfa ráðherrar að skila útfærðum tillögum innan síns málasviðs þannig að þetta gangi allt saman upp. Ábyrgðin og festan er orðin meiri. Við erum síðan til viðbótar með stöðugleikareglu sem á að styðja við þetta. Við erum með pólitískt markmið sem er bratt, þ.e. að skila hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Það er umfram stöðugleikareglu, það er mikilvægt að allir átti sig á því. Það væri ekki skylda miðað við stöðugleikareglu en það er markmiðið sem við erum að vinna að á grunni fjármálaáætlunar.