fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég var sammála mörgu sem þar kom fram og er sammála honum um að það skipti máli að tala um það sem vel er gert. Það er gott starf í nefndinni. Það hefur ekkert að gera með hvort fólk sé ósammála eða ekki. Við erum oft sammála og stundum ósammála eins og gengur, úr ólíkum flokkum og allt það. Forystan hefur borið gæfu til þess að þurfa ekki að takast mikið á um formsatriði heldur ná menn niðurstöðu um lykilatriði. Það á að tala um það og ég þakka meiri hlutanum og hv. þingmanni fyrir hvernig þeir hafa haldið á því.
Ég ætla að taka þrennt úr þessari ræðu sem fór yfir breitt svið. Í fyrsta lagi held ég að ég sé sammála hv. þingmanni um erfðafjárskattinn og að hann þurfi að skoða betur. Ég hef miklar áhyggjur af hækkun á andlagi hans, sem mun hækka skatta mikið. Ég skildi alla vega hv. þingmann þannig og fagna þeim sjónarmiðum og vona að meiri hlutinn hlusti á hv. þingmann.
Ég vil spyrja hv. þingmann út í vörugjöldin, hvort hann væri ekki sammála okkur um að við þyrftum að fá upplýsingar um mat á því hvaða áhrif þessi miklu kaup á bílum hafa á tekjur ríkissjóðs.
Sömuleiðis varðandi varnartengdu verkefnin þá saknaði ég þess í því svari sem við fengum frá utanríkisráðuneytinu hvaða verkefni nákvæmlega væru varnartengd, því það er sagt og kemur m.a. fram í bréfinu að um sé að ræða 24 milljarða. (Forseti hringir.) Mér finnst mjög óeðlilegt ef við fáum ekki sundurgreiningu á því.
Ég vil spyrja hv. þingmann út í þetta þrennt.