157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:53]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurningarnar. Varðandi erfðafjárskattinn þá er málið hjá efnahags- og viðskiptanefnd. Ég veit að nefndin hefur verið að fá til sín gesti varðandi önnur skattaleg mál. Ég veit að hún fer vel yfir öll þau gögn sem send eru miðað við þær upplýsingar sem ég hef, þó að ég sitji ekki í nefndinni. Ég efast ekkert um að hún muni gera það í þessu máli líka. Hér var lesið upp úr umsögn sem var send til nefndarinnar og tel ég eðlilegt að nefndin skoði það mál. Ég reikna með að hún geri það og taki svo ákvörðun í samræmi við það. Ég ætla ekki að fara að leggja nefndinni einhverjar línur en mér finnst mjög mikilvægt þegar svona stórt mál er uppi að það sé skoðað og rýnt, að menn fari yfir allt sem hefur komið fram og taki ákvörðun í samræmi við það.

Hvað varðar vörugjöldin þá get ég ekki andmælt því að það sé mjög mikilvægt að fá upplýsingar um áhrifin eða það sem hefur verið að gerast núna í innkaupum á bifreiðum. Ég vek þó athygli hv. þingmanns á því að eitt er að flytja inn alla þessa bíla og annað er að selja þá. Þeir eru kannski ekki allir komnir í sölu en eins og fram hefur komið er stór hluti af þeim væntanlega fluttur inn af bílaleigum, væntanlegum kaupendum, og er eðlilegt að það sé skoðað hvaða áhrif slíkt getur haft.

Varðandi varnartengdu verkefnin þá hef ég því miður ekki upplýsingar um þá sundurliðun. Ég hef þessar upplýsingar bara úr ræðu hv. þingmanns og úr nefndarálitum sem ég las frá honum. Ég get því miður ekki brugðist við þessu að öðru leyti en því að ég hef séð þessa tölu og er sjálfsagt mál að fá hana útlistaða.