157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:55]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í sjálfu sér er ekki miklu við þetta að bæta. Ég held að það sé aðalatriðið, bæði í vörugjöldunum og varnartengdu verkefnunum, að við fáum þessar upplýsingar. Kannski er eitthvað þarna með vörugjöldin sem við sjáum ekki, ég veit það ekki, en það liggur alveg fyrir að búið er að selja mikið af bílum. Ég hef nú ekki talað við alla en ég hef aðeins heyrt í þeim sem eru að reka þessi bílaumboð og það er nóg að gera, miklu meira en á síðasta ári. Bílaleigurnar hafa keypt 545% fleiri bensín- og dísilbíla í nóvember heldur en á sama tíma í fyrra, og eru hvergi hættar að mér skilst. Þetta skiptir auðvitað máli fyrir afkomuna.

Ég var ekki að biðja hv. þingmann um að koma með sundurliðun núna, alls ekki. Ég var bara að vonast til þess að hann og meiri hluti nefndarinnar styðji okkur í því að fá (Forseti hringir.) sundurliðunina til nefndarinnar.