fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Nei, ég svo sem átti ekki von á því að hann reiknaði með að við ættum þessi svör á reiðum höndum varðandi varnartengdu hlutina. En það er sjálfsagt mál að fara ofan í það eins og ég nefndi hér áðan.
Hvað varðar þetta um vörugjöldin þá held ég að það séu nokkuð margar hliðar á þessu. Þó að vissulega sé hægt að setja þetta fram eins og hv. þingmaður gerir þá er líka mjög mikilvægt að skoða, eins og fram hefur komið í umræðunni, hverjir hafa efni á að kaupa þessa bíla, ekki síst hvað varðar bílaleigurnar og stöðu þeirra í dag til að geta keypt inn alla þessa bíla. Ég held því að það sé sjálfsagt og eðlilegt mál að þær upplýsingar komi með einhverjum hætti fram. Hvort þær breyti einhverju á fjárlögum næsta árs verður svo bara að koma í ljós en sjálfsagt er að kalla eftir upplýsingunum.