157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:57]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir ágætt erindi. Það gerist nú kannski ekki alltaf í þessum sal undir oft og tíðum tæknilegri umræðu að maður sitji í sæti sínu og glenni upp augun, en það gerðist þó undir ræðu hv. þingmanns. Ég gat ekki betur heyrt en að hann væri að hvetja til þess að efnahags- og viðskiptanefnd tæki þann hluta sem dálítið hefur verið fjallað um í dag, erfðafjárskattinn, til frekari endurskoðunar. Þá geri ég ráð fyrir að hv. þingmaður sé að ýja að því að þessi hugmynd sé kannski ekki fullmótuð eða fullþroskuð, enda hafa menn ítrekað í dag viðrað áhyggjur sínar af því að þetta myndi gera kynslóðaskipti bújarða til að mynda illframkvæmanleg nema í þeim fáu tilfellum þar sem erfinginn er einn, þá er málið kannski aðeins einfaldara. Ég fagna þessu og hvet hv. nefnd til að taka hugmyndum þingmannsins vel og fara betur ofan í þetta.

Mig langar líka að nefna kílómetragjaldið sem við höfum rætt aðeins í dag. Ég man ekki, frú forseti, og biðst velvirðingar á því, hvaða hv. þingmaður það var sem nefndi það, en hygg þó að það hafi verið hæstv. ráðherra, að það væri meiri meðalakstur í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og þess vegna væri ekki um landsbyggðarskatt að ræða. Af því að ég veit að hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson hefur verið talsvert mikið úti á landi, bæði sem fótboltamaður, sveitarstjóri og í ýmsum hlutverkum, þá langar mig að vita viðhorf hv. þingmanns til þess að kannski liggi munurinn í því að hér á höfuðborgarsvæðinu eru almenningssamgöngur til staðar og fólk hefur því val. Aftur á móti er þetta val ekki til staðar víða úti á landi til að sækja nauðsynlega þjónustu. Þess vegna leikur mér forvitni á að vita (Forseti hringir.) hvort hv. þingmaður geti tekið undir með mér að þetta komi sérstaklega illa við landsbyggðina.