fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurningarnar. Áskorun til efnahags- og viðskiptanefndar; það er spurning hvernig menn túlka það. Ég er einfaldlega að benda á að ef upplýsingar liggja fyrir, og ég veit eins og ég sagði áðan að efnahags- og viðskiptanefnd vinnur mjög faglega með þau gögn sem hún hefur, þá fer hún væntanlega yfir málið. Hvort það kemur til endurskoðunar eða ekki verður nefndin auðvitað að taka sjálfstæða ákvörðun um. Mér finnst bara eðlilegt að þessi gögn séu skoðuð og athugað hver áhrifin eru. Í máli fjármálaráðherra kom fram að í rauninni væru áhrifin engin þar sem ekki væri reiknað með því að auknar tekjur kæmu inn í ríkissjóð vegna frumvarpsins.
Hvað varðar kílómetragjaldið þá langar mig fyrst að segja um gjöld á ökutæki að það skiptir að mínu mati gríðarlega miklu máli að við séum að fá tekjur og förum svo sannarlega í að efla innviði eins og vegakerfið okkar. Það skiptir gríðarlega miklu máli, ekki síst í Norðausturkjördæmi og á því svæði sem ég og hv. þingmaður þekkjum hvað best, í Þingeyjarsýslunum. Þar er svo margt sem þarf svo sannarlega að fara í og fara þarf í miklar endurbætur á því svæði. Það tengist ekkert akstri mínum sem fyrrverandi íþróttamaður á því svæði, af því að þingmaðurinn vitnaði sérstaklega í það.
Hvort um sé að ræða landsbyggðarskatt eða ekki þá kom fram í gögnum — nú verð ég að rifja upp hvaðan það kom — að ekki væri um landsbyggðarskatt að ræða (Forseti hringir.) vegna þess að álögurnar kæmu mest fram á höfuðborgarsvæðinu. Því miður get ég ekki vitnað nákvæmlega í hvaðan gögnin komu en ég man eftir þessari umræðu þegar við vorum að byrja að ræða kílómetragjaldið í vor og hef tekið þetta trúanlegt.