fjárlög 2026.
Frú forseti. Aðeins meira um erfðafjárskattinn. Ein stór breyta varðar þann tímaramma sem er í núverandi lögum til að gera upp dánarbú. Í dag er hann 40 dagar en í frumvarpinu sex ár. Það eitt og sér ætti að vera nóg til að flagga öllum flöggum sem við eigum.
Varðandi það að afla eigi tekna til uppbyggingar samgöngumannvirkja þá er rétt að hafa í huga að tekjurnar af ökutækjum í dag eru um 80 milljarðar en innan við 50 milljörðum er varið til uppbyggingar samgöngumannvirkja. Þetta er ágætt að hafa í huga í þessari umræðu.
Annars endurtek ég það sem ég nefndi áðan, frú forseti. Ég fagna nálgun hv. þingmanns á þann hluta frumvarpsins er varðar erfðafjárskattinn. Eins og ítrekað hefur komið fram í dag þá eru mjög sterkar vísbendingar um að málið sé vanþroskað og þurfi betri skoðun. Ég nefni þá aftur til að mynda þennan tímaramma því að við getum rétt ímyndað okkur hvað getur breyst á 5–6 árum við uppgjör á dánarbúi.