157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:04]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var svo sem engin sérstök spurning í andsvari hv. þingmanns. Ég ítreka það sem ég hef sagt varðandi erfðafjárskattinn að nefndin fer örugglega ítarlega yfir öll þau gögn sem liggja fyrir og tekur sína sjálfstæðu ákvörðun í framhaldinu.

Hvað varðar kílómetragjaldið þá held ég að við deilum þeirri skoðun að nauðsynlegt sé að bæta í vegaframkvæmdir enn frekar. Það verðum við að gera með því að taka inn einhvers konar gjöld. Þetta er ein leið til þess og mér finnst hún í sjálfu sér ekkert verri en önnur, svo framarlega sem hún gætir ákveðins jafnræðis. Þar deilum við sameiginlegum skoðunum um að það sé ekki eðlilegt að hún bitni sérstaklega á ákveðnum aðilum eða svæðum umfram önnur.