fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni fyrir ræðu sína. Það var ánægjulegt að heyra það sem hann kom inn á um erfðafjárskattinn og það sem honum tengist. Ég tek svo sannarlega undir þau orð. Mig grunar að þetta sé með verri sköttum. Þetta er tvísköttun. Það er verið að leggja skatt á það sem er búið að skatta áður.
Ég vildi spyrja hv. þingmann um sóknaráætlanir landshluta. Ég tók eftir því sem stendur í meirihlutaáliti fjárlaganefndar um sóknaráætlanirnar, þessari hækkun úr 120 milljónum í 400 milljónir. Þess er getið sérstaklega að eðlilegra sé að þetta sé metið í héraði fremur en af fjárlaganefnd, að þetta verði fært heim í hérað „… að fengnum umsögnum ráðuneyta“. Þarna finnst mér miðstýringin svolítið vera komin aftur. Það er eiginlega búið að búa til einhvern skrýtinn hring að mörgu leyti. Væri ekki eðlilegra að landshlutasamtökin sem er verið að reyna að efla með einhverjum hætti, þó að mig gruni að það muni vanta upp á fjármagnið sem hefur komið frá hv. fjárlaganefnd á undanförnum árum í héruðin — ég tek þá sérstaklega eftir þessu atriði: „… að fengnum umsögnum ráðuneyta“. Það er svolítið miðlægt fyrir minn smekk hvernig þetta er sett fram, að framkvæmdarvaldið eigi að koma að. Gæti hv. þingmaður aðeins komið inn á hvaða vægi það á að hafa í þessu og annað? Við höfum báðir reynslu af sveitarstjórnarmálum og svona orðalag er ekki vinsæl setning heima í héraði. Þá þarf líka að vita nákvæmlega hvað er verið að fara með þessum orðum.