fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna og góða ábendingu. Meiningin í þessari setningu er náttúrlega sú að þarna eigi sér stað einhvers konar samtal og samráð vegna þess að verkefnin hafa mörg hver áður verið unnin í samstarfi við ráðuneytin. Ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að það að sækjast eftir sérstökum umsögnum er ekki meginmarkmiðið heldur er það einfaldlega að einhvers konar samtal sé á milli þess ráðuneytis sem um ræðir og viðkomandi landshlutasamtaka til þess að tryggja að verkefnin flytjist örugglega yfir og þau gögn sem til eru um viðkomandi verkefni, ef þau eru þá til í viðkomandi ráðuneyti, flytjist jafnframt til viðkomandi landshluta.
Ég vek athygli á því sem hefur komið fram í umræðunni að við erum hér að tala um ákveðið breytt vinnulag, sem er mjög mikilvægt. Ég held að við deilum þeirri skoðun að það sé mikilvægt að koma þessum ákvörðunum heim í hérað vegna þess að þá geta landshlutasamtökin auglýst og búið sér til sínar forsendur fyrir því hvernig umsóknirnar þurfa að vera og tekið ákvarðanir í samræmi við það. Ég ítreka að það samtal sem þarf að eiga við framkvæmdarvaldið eða við ráðuneytin byggist einfaldlega á því að það séu gögn og upplýsingar og að samræmi sé á því sem verið er að flytja til landshlutanna.