157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Það er mikilvægt að hafa fengið það fram í þingræðu hver skilningur þingmanns í meiri hluta fjárlaganefndar er. Svona stendur þetta í nefndarálitinu en nú er þá komin einhvers konar útskýring og hefði þetta mátt vera svolítið með öðrum hætti í textanum, að hafa meira samráð eða eitthvað slíkt. Það er bara þessi nálgun.

Að lokum vildi ég bara óska eftir stuðningi hv. þingmanns við varaflugvallargjaldið, sem kemur fram í þessu, að það fari í þær framkvæmdir sem hugsaðar voru þegar farið var í þennan leiðangur með flugöryggið. Varaflugvallargjaldið er fyrst og fremst flugöryggismál. Það styrkir alþjóðaflugvelli landsins til þess að sinna hlutverki sínu. Við erum að tala um aðflugin, flughlöð og akbrautir. Tekur hv. þingmaður ekki undir með mér? Ég hef lengi talað fyrir því að á Egilsstaðaflugvelli ætti fyrst að gera svokallaða lúppu á norðurenda brautarinnar fyrir fjármagnið (Forseti hringir.) en ekki fara í einhverjar aðrar framkvæmdir sem eru ekki beint flugöryggismál. Ég sækist eftir stuðningi hv. þingmanns við það.