157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:10]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinni spurninguna eða brýninguna réttara sagt. Ég held að hv. þingmaður þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ég veiti þessu ekki stuðning. Þá væri ég alla vega farinn að tala gegn sjálfum mér því að ég var nú einn af þeim hörðustu á sínum tíma, ef ég man rétt, þegar gjaldið var tekið af. Ég var í ræðu minni að tala um samskipti mín við þingið og nefndir þess. Þetta var eitt af því sem ég fór m.a. fyrir nefndir þingsins til að ræða þegar gjaldið var tekið af til að tryggja að það kæmi á aftur og mætti ég ekki miklum skilningi á þeim tíma, m.a. frá samflokksmönnum hv. þingmanns. Aftur á móti tek ég heils hugar undir það að þetta gjald þurfi að skila sér í þessi verkefni sem hv. þingmaður nefndi því það er gríðarlega mikilvægt, sérstaklega fyrir flugvelli eins og Egilsstaðaflugvöll og Akureyrarflugvöll.