fjárlög 2026.
Frú forseti. Við ræðum hér fyrstu fjárlög ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur í 2. umræðu. Ég ætla að reyna að temja mér að vera örlítið jákvæð. Það eru ýmsar sæmilegar breytingar sem gerðar voru í meðförum nefndarinnar. Ég er ánægð með þá viðbót sem meiri hluti nefndarinnar hefur lagt til. Ég ætla sérstaklega að fá að nefna varðandi meðferðarúrræði og meðferðarmál, fíknimeðferðir. Mér er samt mjög óljóst nákvæmlega hvernig á að skipta þessu. Það kemur ekki fram í nefndarálitinu en ég sé að það er ætlast til þess að heilbrigðisráðuneytið forgangi því og eftir atvikum með aðkomu Sjúkratrygginga. Ég held að þetta sé málaflokkur sem þurfi jafnvel enn meira fjármagn en þarna er og ætla að ítreka þá ósk mína og tillögu, sem ég hef margoft sagt hér, að Sjúkratryggingar eigi auðvitað greiða með meðferðarúrræðum óháð því hvort meðferð eigi sér stað á Íslandi eða erlendis. Alveg eins og við greiðum með fólki sem er að fara í liðskiptaaðgerðir eða hjartaaðgerðir erlendis; ef biðlistinn er það langur hérna heima þá greiða Sjúkratryggingar, af því að við erum sjúkratryggð hjá Sjúkratryggingum. Það er því með öllu ólíðandi að fíknisjúkdómar lúti einhverri annarri nálgun en annars konar sjúkdómar þegar að þessu kemur. Ég held líka að það sé mjög mikilvægt að það fari auknir fjármunir í Ljósið. Við höfum séð hversu miklu máli sú endurhæfing skiptir og hvað það starf gerir. Við höfum skýrslur um það sem sýna okkur hvað þetta í rauninni sparar til lengri tíma og sama hér, þannig að ég er ánægð með að það sé ákveðið að setja í aukin endurhæfingarúrræði. En það er eins, það er alveg óvíst nákvæmlega hvernig þeim fjármunum verður skipt milli þeirra aðila sem eru að sinna þessu.
Efling íslenskukennslu er mikilvægt mál og ég sé hvað er álit meiri hluta nefndarinnar og vona að ráðherrann hlusti á þetta því að ég á erfitt með að skilja það að ætla að draga úr fjárveitingum til íslenskukennslu þegar raunin er eins og hún er. Við vitum að við höfum ekki verið að fjárfesta nóg í því fólki sem hingað kemur og hér vill búa og við vitum hversu mikilvægt það er að fólk tali íslensku og geti þannig orðið þátttakendur í íslensku samfélagi. En betur má ef duga skal og ég vil benda á þá ágætu vinnu sem átti sér stað hér á síðasta kjörtímabili og var unnin þverpólitískt með fulltrúum frá öllum flokkum í því einmitt að koma með aðgerðir sem lutu að útlendingamálum og aðlögun eða inngildingu.
Ég verð að viðurkenna að ég furða mig svolítið á því hvernig á svo að ná fram þessum breytingum. Ég hef reynslu af því að vera í stjórnarmeirihlutastarfi þar sem fólk var ekki alltaf sammála og það þurfti að miðla málum og þess vegna fannst mér hálfhjákátlegt og fyndið jafnvel þegar hæstv. forsætisráðherra kom fram á fyrstu dögum þessarar ríkisstjórnar og fullyrti að hér væri samstaðan svo mikil að það væri ekki rifist um neitt einasta atriði og allir væru sammála um allt sem á þingmálaskránni lægi. Það fór reyndar mjög lítið í gegn af þeirri ágætu þingmálaskrá.
Það er alveg greinilegt á öllu, við erum núna í 2. umræðu fjárlaga þegar við ættum að vera að taka 3. umræðu fjárlaga, að það hefur verið vandasamt verk fyrir stjórnarmeirihlutann að koma þessu saman. Ég efast ekki um að það hefur verið erfitt fyrir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að sætta sig við enn frekari útgjöld því að næg eru útgjöldin í fyrirliggjandi frumvarpi eins og það kom inn í þingið. Þá er spurning hvernig eigi að fjármagna þessi auknu útgjöld og það verður að viðurkennast að það er með öllu mjög loðið. Ég held að þessi ríkisstjórn hafi sett einhvers konar Íslandsmet í notkun á orðinu skattahækkanir. Hér höfum við heyrt alveg ótrúlegustu lýsingar á því hvernig þetta er einhvers konar leiðrétting, aðlögun, verið að loka götum og ég veit ekki hvað og hvað. Ég er auðvitað að vísa í vörugjöldin, erfðafjárskattinn. Ég er enn þá mjög spennt að sjá hvernig hæstv. efnahags- og viðskiptanefnd mun afgreiða það út úr nefndinni því að eins og kom fram í umræðu áður þá veit ég að hæstv. fjármálaráðherra hafði áhyggjur af því hvernig þetta kæmi t.d. út fyrir landbúnaðinn og yfirfærslu búa þar. Ég hef líka bent á að ég skil ekkert hvernig á að útfæra þetta varðandi hugverkaréttindi og þessar óefnislegu eignir og ég sé ýmis vandamál uppi hvað það varðar. Mér fannst áhugavert líka þegar maður fór að skoða hvernig erfðafjárskattur væri í kringum okkur. Ég velti fyrir mér hvort við þurfum ekki bara að horfa til Norðmanna og Svía í þeim efnum sem hafa aflagt þennan skatt einmitt vegna þess að það er flókið og erfitt að innheimta hann og það getur verið svona mikið misræmi í því. Ég tala nú ekki um samsköttun hjóna, kílómetragjaldið, skatta á leigutekjur og þetta sem við höfum farið hér nokkuð reglulega yfir; það eru sem sagt skattahækkanir ofan á skattahækkanir.
Það sem ég tek út úr þessu er eitthvert svipað orðalag og til að mynda Samtök atvinnulífsins notuðu í sinni umsögn: Það eru stór orð en litlar efndir. Ég minnist þess að hæstv. forsætisráðherra hafi notað orðatiltækið, sem ég þekki býsna vel, að það ætti að stækka kökuna. Það myndi koma sér vel fyrir íslenska þjóð, efla framleiðni, efla fyrirtækin í landinu þannig að þau gætu greitt aukna skatta, ekki prósentu heldur aukna skatta, vegna þess að þeim vegnaði vel. Nú erum við búin að sjá umtalsverðar skattahækkanir á sjávarútveginn og við sjáum öll fyrirsagnirnar sem berast okkur mjög reglulega um ástandið í þeirri atvinnugrein. Við sjáum til að mynda hvernig fjárfestingar hafa dregist saman þar og hvernig þau fyrirtæki áætla að fjárfesta mun minna á komandi misserum en þau hafa verið að gera, uppsagnir og lokanir.
Ferðaþjónustan er í kröggum og hefur verulegar áhyggjur af kílómetragjaldinu og vörugjöldum á bifreiðar. Við höfum fengið mikið ákall frá þeim. Það kemur svo ofan á boðaðar skattahækkanir er lúta að einhvers konar innviðagjöldum. Þetta tvennt er eitthvað sem ég get ekki sagt að geti fallið undir það að vera að stækka kökuna. Einn hv. þingmaður úr stjórnarliðinu sagði áðan: Það þarf sko fjárfestingar og útflutningstekjur. Það á að vera grundvöllur hagvaxtar. Ég er algerlega sammála því en það sést ekkert í þessum fjárlögum eða í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Ég er búin að fara yfir sjávarútveginn sem lengi hefur verið burðarstólpi í útflutningi okkar. Við höfum byggt atvinnulíf okkar mikið á honum því að það er bæði beinn sjávarútvegur og svo alls konar atvinnugreinar honum tengdar eða iðnaður. Ferðaþjónustan hefur vaxið mikið, við vitum hvernig er komið fyrir stóriðjunni að einhverju leyti núna sem er að glíma við mikið högg. Við áttum okkur á því hvernig staðan er í heiminum í tollastríðum stórveldanna og hvernig komið er fyrir okkur sem bæði erum að fá á okkur háa tolla frá Bandaríkjunum og líka frá Evrópusambandinu, þrátt fyrir að við höfum talið okkur vera innan Evrópska efnahagssvæðisins. Ég ætla bara að ítreka enn og aftur það sem ég hef sagt að þarna þurfum við að leggjast öll á árarnar um að snúa við þeirri ákvörðun og tryggja það að Evrópusambandið komi aldrei aftur við okkur með þessum hætti.
Það sem mig langar að nefna hérna eru nýsköpunarfyrirtæki. Ég hefði haldið að það væri mikill vilji hjá flestum á þingi til að efla nýsköpun og þekkingargreinarnar okkar og að þar væri vissulega mikill vaxtarsproti. Sjálf hef ég haldið ófáar ræður um það. Það var unnið vel að þessu á síðustu kjörtímabilum þar sem við höfum byggt upp ramma utan um þessar greinar sem eru í nýsköpun og eru að þróa sig áfram, svona vaxtarsprotar, bæði með endurgreiðslu á rannsóknum og þróunum og öðru umhverfi, og við höfum séð nýsköpunarfyrirtæki tala um að það sé bara til mikillar fyrirmyndar að opna og reka nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi. En ég sé samt sem áður í fjárlögunum og í meirihlutaálitinu að þarna er líka verið að draga saman. Það segir hérna undir lið 07.20 í nefndaráliti meiri hlutans að gert sé ráð fyrir að endurgreiðsla til nýsköpunarfyrirtækja lækki um 3,4 milljarða í samræmi við uppfærða áætlun, 3,4 milljarða. Það segir reyndar líka að miðað sé við að samþykktarhlutfallið verði 75% hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum og 80% hjá stórum fyrirtækjum. Nýlega komu fréttir frá Rannís þar sem þau voru að klára umsóknir og þar var samþykktarhlutfallið 64%. Mér finnst 64% lágt, sérstaklega ef það er einhver samhljómur um það að við viljum efla nýsköpun og teljum að það skipti máli að endurgreiða vegna rannsókna og þróunar, sem ég hélt hingað til að væri mikil samstaða um. En þá er gerð tillaga í nefndarálitinu um 500 millj. kr. lækkun framlaga til styrkja nýsköpunarfyrirtækja og tillagan byggist á endurmati á útgjaldaspá og kemur til viðbótar við lækkun sem ríkisstjórnin lagði til sem var 786 milljónir.
Þannig að við erum búin að auka skatta á sjávarútveginn, við erum að auka skatta á ferðaþjónustuna, stóriðjan er að glíma við þessi viðfangsefni sem ég fór hér yfir og það er verið að lækka framlög til nýsköpunarfyrirtækja. Þá segi ég, virðulegur forseti: Er fólk ekkert að hugsa um skattstofninn hérna? Er enginn að velta því fyrir sér að það skipti mestu máli að hér séu búin til einhver verðmæti? Vegna þess að þegar atvinnulífinu okkar vegnar vel þá fáum við auknar tekjur í formi skatta en ef ráðist er að fyrirtækjum með þessum hætti, með ósanngjörnum og óraunhæfum skattahækkunum, þá gefa þau eftir og það kemur minna í kassann. Mér finnst þessar aðgerðir í engu samræmi við það sem þessir flokkar sem nú sitja í ríkisstjórn lofa og ég velti fyrir mér hvort allt þetta endurmat á útgjaldaspá á þessum liðum sé einhvers konar excel-leikur sem hafi þurft að fara í til að reyna að koma til móts við óskir ólíkra flokka um breytingar á þessum fjárlögum.
Virðulegur forseti. Svo ég sé ekki bara að hafa mín orð um þessa þætti þá segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins Stór orð, litlar efndir:
„Ríkisstjórnin hefur hins vegar kosið að feta fremur leið skattahækkana. Háir skattar grafa undan hagvexti með því að draga úr fjárfestingum og atvinnusköpun. Skilvirkt, fyrirsjáanlegt og hóflegt skattkerfi styður aftur á móti við atvinnulíf með því að tryggja fjármagn til fjárfestingar í mikilvægum opinberum innviðum án þess að kæfa frumkvæði og framleiðni.“
Þetta eru orð Samtaka atvinnulífsins svolítið yfir það sem ég var að fara yfir áðan. Samtök atvinnulífsins segja líka að það beri lítið á aðhaldi þrátt fyrir yfirlýsingar um annað og ég verð að vera alveg hjartanlega sammála því enda er vel farið yfir í áliti minni hlutans, ég held það sé 3. minni hluti sem í eru fulltrúar mínir í nefndinni, þessar hagræðingaraðgerðir sem hafa verið háleit markmið um og hvernig var blásið svolítið upp að óskað hefði verið eftir alls konar hugmyndum frá fólki úti í bæ um það hvernig hægt væri að hagræða í ríkisrekstri en lítið sem ekkert af því skilað sér í einhverjum aðgerðum. Það segir einmitt í nefndaráliti 3. minni hluta.
„Uppskeran er þó heldur rýr og niðurstaðan sú að boðaðar hagræðingaraðgerðir nema aðeins 0,9% af útgjöldum ríkissjóðs árið 2026 og er hluti aðgerðanna að fresta verkefnum og tæma varasjóði ráðuneyta sem varla getur talist til raunverulegrar hagræðingar.“ — Ég tek undir þetta.
Þannig segja Samtök atvinnulífsins: Aðhald í orði en ekki á borði, að aðhaldsstigið sé nokkurn veginn hlutlaust þrátt fyrir markmið stjórnvalda um að stuðla að frekari lækkun vaxta.
Virðulegur forseti. Ég held að allir sem lesa sig í gegnum þessi fjárlög átti sig á þessu og ég viðurkenni líka að hæstv. fjármálaráðherra var alveg hreinskilinn í því þegar hann lagði málið fyrir þingið að þetta væru hlutlaus fjárlög, þrátt fyrir að ýmsir þingmenn stjórnarmeirihlutans hafi lýst þessu með öðrum hætti, að þetta væru fjárlögin sem væru að sýna fram á aðhaldið, svona ætti að ná niður vöxtum og verðbólgu. En það hefur einmitt sýnt sig að svo er ekki og þessar hagræðingaraðgerðir eru meira í orði en á borði.
Það segir líka í umsögn Samtaka atvinnulífsins: „Stjórnvöld með lítið sem ekkert framlag til aðhalds á næsta ári. Að teknu tilliti til breytinga á afkomu sem verða vegna hagsveiflunnar er framlag stjórnvalda hverfandi á næsta ári og mun minna en síðustu tvö ár.“ Þá minnist ég þess að hafa heyrt fulltrúa Viðreisnar og Samfylkingarinnar í púlti Alþingis á síðasta kjörtímabili með yfirlýsingar um það að Seðlabankinn væri skilinn eftir einn í þessari baráttu við að ná niður verðbólgunni. En það er skýrt af þessum fjárlögum að það er ekki, hér er þessi ríkisstjórn ekkert að vinna í þeim efnum og er að leggja minna til en á síðustu tveimur árum.
Þá er það stöðugleikareglan. Mér finnst það ágætisspurning sem Samtök atvinnulífsins setja fram í umsögn sinni um að stöðugleikareglan tryggi hvað, skattahækkanir? Það er kannski það sem við höfum verið með áhyggjur af, að stöðugleikareglan nái einmitt fyrst og fremst að tryggja það að hér sé verið að leggja til skattahækkanir, reyndar með alls konar orðasalati, sellófani og slaufum þar að lútandi. Ég held að stjórnarliðar séu meira að segja hættir að reyna að verja það og segja að þetta sé eitthvað annað, hér er bara talað um að þetta séu hóflegar skattahækkanir. Einhverjum kann að finnast það. Mér finnst það ekki, virðulegur forseti, og á tímum sem þessum, þar sem við sjáum að það eru krefjandi tímar fram undan hjá íslensku atvinnulífi, og reyndar bara víða um heim, við sjáum að við erum að glíma hér við stríð, við erum að glíma við tollastríð ofan á það, þá hefði ég talið að það væri skynsamlegra fyrir ríkisstjórnina að huga að atvinnulífinu, gefa þeim frekar einhvern vaxtarsprota heldur en að kæfa þau með aukinni skattheimtu. En það er það sem þessi ríkisstjórn virðist fyrst og fremst vera að einbeita sér að.
Ég ætla að segja að ég er ánægð að sjá hækkun á sóknargjaldinu. Ég er líka ánægð að sjá aukið framlag í bókasafnssjóðinn í tillögum meiri hlutans, enda eru þetta tillögur sem ég tek undir og hefði stutt. Þær eru mikilvægar, eru ekki háar upphæðir en það hefði verið ástæða til þess að hagræða fyrir þeim á öðrum stöðum.
Virðulegur forseti. Svona ef ég tek þetta saman þá eru hér sæmileg skref tekin og eitthvað af þessum breytingartillögum sem ég mun styðja hjá meiri hluta fjárlaganefndar. En stóra myndin í þessu fjárlagafrumvarpi, fyrsta fjárlagafrumvarpi þessarar ríkisstjórnar, er ekki góð. Það eru fyrst og fremst skattahækkanir og einhvers konar blindni á það hver staðan er í efnahagslífinu á Íslandi í dag. Hér er ekki verið að vinna að því, eins og ég sagði í upphafi, að stækka kökuna, þrátt fyrir að hæstv. forsætisráðherra hafi lýst því yfir að það væri verkefni og markmið þessarar ríkisstjórnar. Það er einmitt verið að minnka kökuna, við erum strax farin sjá merki um það. Við tókumst hér á síðasta sumar, síðasta vor, um skattahækkanir á sjávarútveginn og við sjáum nákvæmlega það gerast sem verið var að ræða. Hvað heldur fólk, ef þetta mun ekki bitna til að mynda á ferðaþjónustunni sem þó er grundvallaratvinnugrein á Íslandi? Þá spyr maður: Og hvað þá? Ef skattleggja má sjávarútveginn meira, ef skattleggja má ferðaþjónustuna meira, hvað er það þá sem við ætlum að byggja upp? Hvað er þetta plan? Hver er þessi atvinnustefna hjá hæstv. ríkisstjórn? Ég hefði kannski haldið að þá ætti að veðja á nýsköpun, tækniþróun. Nei, þar skal líka skorið niður.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég hef komið því áleiðis sem ég tel mikilvægt að komist áleiðis; það vantar efndir. Ég ætla að hafa þessa fyrirsögn sem Samtök atvinnulífsins eru með: Stór orð en litlar efndir. Ég er búin að segja fullt af fallegum orðum en það eru engar efndir á þessu. Það er ekki verið að beita neinni sleggju til að ná hér niður verðbólgu. Ef eitthvað er verið að gera þá er verið að kæfa atvinnulífið og það er ekki eitthvað sem mun gagnast til lengri tíma litið og við erum strax farin að sjá merki þess.