fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ræðu. Mig langar til að víkja að nokkrum atriðum sem komu fram í hennar máli sem ég held að byggi á ákveðnum misskilningi. Í fyrsta lagi er það þannig að engar breytingar eru að eiga sér stað á framlagi vegna rannsókna og þróunar og þær lækkanir sem voru kynntar á útgjaldaliðnum snúa fyrst og fremst að þeim atriðum sem hv. þingmaður vék raunar að sjálf, sem er að umsóknum hefur fækkað og árangurshlutfallið lækkað. Það eina sem liggur fyrir og hefur þegar verið kynnt eru þau áform sem ég hef sett fram í frumvarpi um að auðvelda fyrirtækjum að sækja um þessa styrki. Og þá er sérstaklega verið að auðvelda fyrirtækjum sem eru að sækja um minna en 125 milljónir, ef minnið svíkur mig ekki, þannig að þeim dugi að sækja um annað hvert ár.
Stóra vandamálið í þessu kerfi á þessu ári hefur verið ákaflega langur umfjöllunartími umsókna hjá Rannís og það helgast af því, eins og hv. þingmaður vék að, að úrræðið hefur verið vinsælla en Rannís hefur fyllilega ráðið við. Það sem við erum að gera er fyrst og fremst að auðvelda þá vinnu. Það er sem sagt enginn samdráttur, það er einfaldlega bara verið að uppfæra útgjaldaáætlun í samræmi við úthlutunina árið 2025. En mig langar til að spyrja hv. þingmann um eitt atriði. Mér hefur verið legið á hálsi, að ósekju að mínu mati, að hafa tekið tillögur fyrri ríkisstjórnar og fylgt þeim eftir. Ein af þeim áætlunum sneri að því að auka tekjur af umferð almennt þannig að það myndi ná 1,5% af vergri landsframleiðslu, sem þó er einungis brot af því sem umfangið var. Markmiðið með því væri að styrkja grundvöllinn undir fjárfestingar í samgönguinnviðum. Þetta var í fjármálaáætlun síðustu ríkisstjórnar. Mig langar þó til að vita með hvaða hætti hv. þingmaður teldi að það yrði gert í ljósi þeirrar gagnrýni sem hún setur fram á útfærslu þessarar ríkisstjórnar.