fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Ég hlakka til að sjá og fjalla um frumvarp frá hæstv. ráðherra hvað lýtur að því að einfalda nýsköpunarfyrirtækjum að sækja um endurgreiðslur eða styrki fyrir sína starfsemi. Mér finnst mjög líklegt að ég muni styðja slíkt mál. Ég hef lengi talað fyrir nýsköpunargeiranum okkar. Eins og hæstv. ráðherra sagði hér réttilega þá erum við með mjög gott kerfi enda hefur verið mikil ásókn í það. Ég les það á heimasíðu Rannís að erfitt hafi verið að fara yfir þessar umsagnir og anna þessu. Úr því þarf að leysa og ef það er með því að einfalda kerfið þá styð ég það.
Árangurshlutfallið hefur verið 64%. Það er ekki gott og þá velti ég fyrir mér: Af hverju er svo? Af hverju er árangurshlutfallið 64%? Af þeim tölum sem ég var að reyna að gúgla í gegnum er þetta um 89% á tímabilinu 2015–2020. Nú erum við komin niður í 64% og þess vegna er verið að lækka hér framlög. Það er verið að lækka um 3,4 milljarða. Það er í samræmi við uppfærða áætlun þannig að gert er ráð fyrir því að árangurshlutfallið verði áfram lægra á næsta ári. Síðan stendur hér líka að tillaga liggi fyrir um 500 millj. kr. lækkun framlaga til styrktar nýsköpunarfyrirtækjum. Hún bætist ofan á þá 786 milljóna lækkun sem er þó í fjárlögum. Þetta er alla vega lækkun upp á 1,2 milljarða í þessum styrkjum sem er umfram það sem varðar endurgreiðsluna.
Virðulegur forseti. Ef hæstv. ráðherra telur þetta vera einhvers konar misskilning af minni hálfu þá, í guðanna bænum, leiðréttum það. Þetta er samt sem áður það sem stendur í nefndarálitinu. Þetta er þá í heild 4,6 milljarðar í lækkun (Forseti hringir.) í þessum lið, 7.20. Það er töluverð fjárhæð fyrir þá vaxtarsprota sem við kysum að horfa til. Virðulegur forseti. Ég kem inn á kílómetragjaldið í seinna andsvari.