fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að hafa skautað fallega fram hjá því að svara spurningu minni (Gripið fram í.) en hún lofar að gera betur, ég heyrði það þegar hún fór úr ræðustól. Ég mun því halda samtalinu um R&Þ- styrkinn áfram. Árangurshlutfallið er ekki meitlað í stein, árangurshlutfallið fer eftir gæðum umsókna. Ég vil í þessu samhengi nefna að árangurshlutfall umsókna í Rannsóknasjóð er 9% þannig að það að umsóknirnar hafi ekki fengið ásjá hjá Rannís hefur ekki neitt með ákvarðanir ríkisstjórnarinnar að gera, en það hefur líka orðið samdráttur í heildarumsóknum og það getur verið að sá mikli kúfur sem hefur farið í gegnum kerfið á undanförnum árum sé að einhverju leyti genginn í gegn. Það er ekki gott að segja, við vonum auðvitað, bæði ég og hv. þingmaður, að svo sé ekki vegna þess að þetta hefur verið geysilega vel heppnað framtak sem hefur skilað miklu. En ég vil þá ítreka að ég bíð spenntur eftir svari við spurningu minni frá fyrra andsvari.