fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég varð nú að fá skjóta á hæstv. ráðherra sem skautaði algjörlega fram hjá því að svara t.d. í óundirbúnum fyrirspurnum. En ég bara ítreka hérna nýsköpun og rannsóknir, ég heyri að hæstv. ráðherra er ánægður með það kerfi sem við höfum byggt upp á síðustu árum. Það hefur virkað vel, enda hefur það skilað alveg gríðarlegum vexti hjá þessari atvinnugrein eða þessari stoð, búið til í rauninni nýja stoð í íslensku atvinnulífi og efnahagslífi. Ég vona því að hæstv. ráðherra sé tilbúinn að standa vörð um það mikilvæga kerfi til þess að við sjáum áfram þessa sprota vaxa. Ef hæstv. ráðherra telur að þetta hafi ekkert með aðgerðir ríkisstjórnarinnar að gera þá hvet ég samt hæstv. ráðherra til að eiga samtal við fyrirtæki í þessum geira því að þar er mikil hræðsla við að þetta árangurshlutfall sé beintengt einhvers konar hagræðingaraðgerðum ríkisstjórnarinnar. Hæstv. ráðherra hristir hér hausinn, en það er það sem þessi fyrirtæki finna fyrir vegna þess hversu langan tíma það tók að afgreiða þetta og vegna þess hversu árangurshlutfallið er lágt.
En að kílómetragjaldinu. Ég hef, virðulegur forseti, fjallað hér um kílómetragjaldið í töluverðan tíma og það hefur staðið til lengi að finna leiðir til þess að taka einhvers konar gjöld af rafmagnsbíl eins og ég ek. Nú greiði ég kílómetragjald í hverjum mánuði til ríkissjóðs og ég ætla reyndar að koma með eina hagræðingartillögu til hæstv. ráðherra. Það er kannski nóg að senda bara eina innheimtu rafrænt en ekki bæði frá island.is, ríkissjóði og einhverjum þriðja, þannig að maður fær alveg þrjá pósta um að það sé komið nýtt skjal um að maður eigi að greiða kílómetragjald. En, virðulegur forseti, sú aðferð sem hæstv. ráðherra er hér að leggja til — það er alveg rétt að það var verið að vinna að þessu í fjármálaráðuneytinu á síðasta kjörtímabili. Það er alveg kórrétt hjá hæstv. ráðherra en það fór ekki í gegnum þingið. Það fór ekki í gegnum þingið vegna þess að þingmenn höfðu ekki trú á þessu. Það komu upp (Forseti hringir.) ýmsir ágallar á kerfinu og eitt af því er til að mynda: Treystum við því að verðið lækki raunverulega þegar við dælum á bílinn, (Forseti hringir.) treystum við því? En Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt til útfærslu og ég er nokkuð viss um að hæstv. ráðherra þekkir til þeirrar útfærslu.