157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[21:41]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2026. Ég er ein af þeim sem standa að meirihlutanefndaráliti fjárlaganefndar og ég vil bara byrja á því að þakka fyrir þá góðu vinnu sem hefur átt sér stað í nefndinni, það hefur verið afskaplega gott að vinna í nefndinni. Það hafa verið málefnalegar umræður, vinnan hefur gengið vel, við höfum tekið á móti fjölmörgum gestum sem hefur dýpkað umræðuna og veitt okkur nefndarmönnum líka betri skilning á þeim verkefnum sem við erum að fást við þannig að það hefur bara verið mjög ánægjulegt. Við höfum líka verið heppin með það, eins og ég held reyndar allar nefndir hér, að vera með einstaklega gott starfsfólk sem hefur hjálpað okkur mikið og fyrir það er ég þakklát.

Þær hafa verið mikið ræddar, þær aðstæður sem hagkerfið stendur frammi fyrir og efnahagslífið, og það er auðvitað bara þannig að við erum með sveiflukennt hagkerfi, við förum upp og við förum niður en við höfum einhvern veginn einstaka aðlögunarhæfni, við lendum alltaf á fótunum, sem er ánægjulegt. Það kemur fram í nefndarálitinu hvaða breytingar við þurftum að gera vegna breyttra hagvaxtarhorfna þar sem þær eru nokkuð verri en þær voru í haust og það er auðvitað vegna þessara áfalla sem við höfum orðið fyrir, ekki síst á Grundartanga og hjá PCC á Bakka eins og fleiri nefndarmenn hafa rætt hér í dag. Þetta hefur auðvitað áhrif á fjárlögin og við þurfum að taka tillit til þess. En svo er það hin hliðin, að þegar hagkerfið kólnar þá skapast auðvitað aðstæður til lækkunar vaxta og verðbólgu. Það hefur ákveðin jákvæð áhrif, ekki síst fyrir heimili og fyrirtæki í landinu. Þó svo að ég sé ekki endilega að tala það upp að hagvaxtarhorfur séu verri, þá hefur það þau áhrif að það eru betri skilyrði fyrir lækkun vaxta, sem er gott.

Það er auðvitað búið að ræða margt hér í dag. Mig langaði svolítið að taka upp landsbyggðargleraugun. Ég er þingmaður Norðvesturkjördæmis og hef nú verið að horfa á fjárlögin út frá því sjónarhorni. Það hefur komið fram í nokkrum ræðum í dag en ég vil líka fá að taka það upp og er kannski fyrsta málið sem ég vil taka upp, en það er stórefling sóknaráætlana. Það er verið að setja 400 milljónir í sóknaráætlanir sem er ofboðslega mikilvægt verkefni. Það er auðvitað þannig að þetta hefur sannað sig. Þetta er búið að vera við lýði í yfir áratug. Við erum, held ég, mörg hér inni sem þekkjum sóknaráætlanir og höfum unnið við þær svona hinum megin frá líka og þetta er bara að virka. Þetta hreinlega virkar. Ég held að landshlutarnir eigi eftir að gleðjast yfir því að við erum að setja aukafjármagn í sóknaráætlanir. Við erum að segja: Við treystum ykkur til að velja þessi verkefni, þið hafið verkferlana, þið hafið vinnulagið. Ég er sannfærð um að með þessu erum við að auka faglegheitin af því að það er auðvitað miklu faglegra að landshlutarnir og þau stjórnvöld sem ríkja í landshlutunum fari yfir þessi mál frekar en níu manna fjárlaganefnd sem er bara með eitthvert excel-skjal. Ég var lengi formaður stjórnar uppbyggingarsjóðs Vestfjarða, áður vaxtarsamnings Vestfjarða, sem var einmitt að taka við svona verkefnum eins og fjárlaganefnd er að fá. Í landshlutunum, fyrir ykkur sem ekki vitið, eru bara ákveðin matsblöð þar sem öll verkefni eru metin út frá nýnæmi, út frá því hversu burðug þau eru til að halda áfram og líka tengingu við samfélagið o.s.frv. Þannig að landshlutarnir eru miklu betur í stakk búnir til að meta þessi verkefni heldur en fjárlaganefnd, þótt fjárlaganefnd sé nú ágæt fyrir það sem hún er og hún er alveg frábær. En ég segi það bara hér að ég tel að þetta verkefni eigi betur heima í landshlutunum, það er faglegra. Það gefur líka ákveðinn fyrirsjáanleika. Eins og þið vitið þá eru sóknaráætlanir tvenns konar. Það er bæði þetta sjóðafyrirkomulag og svo eru sérstök áhersluverkefni sóknaráætlana sem eru mismunandi eftir landshlutum. Það eru heimamenn sjálfir sem velja það og velja sínar áherslur þannig að við erum þá líka að valdefla landshlutana sem ég tel að sé gríðarlega mikilvægt. Ég er því ofboðslega ánægð með þessa áherslu fjárlaganefndar.

Það eru reyndar líka fleiri mál sem skipta landsbyggðina mjög miklu máli. Eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson fór yfir áðan þá er það styrking sjúkraflutninga og heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og líka að styrkja menntun og þekkingu sjúkraflutningamanna. Það skiptir gríðarlega miklu máli og er eitt af þessum góðu málum sem má finna hér í meirihlutaáliti fjárlaganefndar.

Mig langar líka að nefna flugþróunarsjóð sem skiptir líka gríðarlega miklu máli. Það kom sérstaklega fram í umsögn frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra að þetta skiptir máli. Fólk getur spurt: Hvaða máli skiptir það að setja aukinn pening í flugþróunarsjóð? Með þessu erum við að styrkja aðra gátt inn í landið. Við erum að dreifa ferðamönnum betur um landið og við erum að auka samkeppnishæfni Íslands þannig að ég er mjög ánægð með það að styrkja flugþróunarsjóð.

Það eru önnur verkefni sem ég held að eigi líka beintengingu við landsbyggðina, það á að stækka ferðasjóð ÍSÍ. Hann hefur ekki hækkað síðan 2017, hann hefur verið 130 milljónir síðan 2017 og nú er verið að setja auka 100 milljónir í hann og ég bið þá sem eru duglegir að reikna hér í salnum að finna út hversu hátt hlutfall þessi hækkun er. Hún er stór. Þetta skiptir landsbyggðina gríðarlega miklu máli af því að þau félög sem fá mest úr þessum sjóði eru KA á Akureyri, Þór á Akureyri, Þróttur á Neskaupstað, ÍBV í Vestmannaeyjum, Vestri á Ísafirði og Tindastóll á Sauðárkróki. Þetta eru landsbyggðarfélögin sem eru að fá úr ferðasjóði ÍSÍ og þetta skiptir líka máli. Það er markmið ríkisstjórnarinnar að auka aðgengi barna að íþróttastarfi og þá skiptir máli að við komum þeim á milli landshluta í keppnir og reynum að koma til móts við kostnað foreldra í því og þetta er ein leið til þess.

Svo er eitt risastórt mál sem við höfum stundum rætt og það snertir þessa fjóra verknámsskóla sem á að byggja á landsbyggðinni, einn í Keflavík sem er svona „semi“-landsbyggð, einn á Ísafirði, einn á Sauðárkróki og einn á Akureyri. Þetta eru allt gríðarlega mikilvæg verkefni og til þess fallin að auka samkeppnishæfi landshlutanna og mæta betur þeirri kröfu um að við séum að mennta fleiri með iðnmenntun og þar leika verknámsskólar lykilhlutverk. Ég þekki nú kannski verknámsskólann á Ísafirði einna best. Fyrir ykkur sem þangað hafa komið þá er hann náttúrlega í kjallaranum á heimavistinni í ósamþykktu húsnæði og það loftar ekki og þetta eru algerlega óboðlegar aðstæður fyrir skólarekstur. Þannig að það verður ofboðslega gaman að fara í það verkefni. Það hafa heyrst einhverjar raddir um að það eigi ekki að fara í þetta. Það er bara alrangt og gott að segja það enn og aftur: Það á að fara í þessa skóla og það er búið að forgangsraða þeim. Það verður byrjað á Suðurnesjum, svo verður farið á Ísafjörð og Sauðárkrók og svo á Akureyri. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli.

Ég var nú að hugsa um að vera frekar í gæðum en magni en mig langaði að nefna líka eitt mál sem hefur verið rætt hér í dag og í nokkrum ræðum. Það er mál sem á kannski rætur að rekja til efnahags- og viðskiptanefndar en tengist að sjálfsögðu fjárlögunum og það varðar lækkun á innviðagjaldi. Við ræddum það sérstaklega þegar við 1. umræðu fjárlaga hvað ætti að gera í því og það þekki ég mjög vel, að lækka innviðagjald, og við erum að gera það. Við fengum fjölmargar umsagnir í efnahags- og viðskiptanefnd um innviðagjald og hér er verið að koma til móts við þær raddir og fyrir þá sem eru duglegir að reikna þá er, eins og kemur fram í breytingartillögu meiri hluta fjárlaganefndar, verið að færa gjaldið niður í 1.600 kr. Síðasta ríkisstjórn setti gjaldið í 2.500 kr., algerlega án alls fyrirsjáanleika, þessu var bara dembt á í lok nóvember og tók gildi 1. janúar, enginn fyrirvari, 2.500 kr. á hvern einasta farþega hverja einustu nótt. Það var alveg vitað að þetta yrði algjörlega hræðilegt og ekki var hlustað á umsagnir og var ég nú ein af þeim sem skrifuðu umsögn, ásamt mörgum, og ekki var á okkur hlustað. Við fengum fjölmargar umsagnir núna og það átti sér stað mikil umræða um þetta mál í efnahags- og viðskiptanefnd og við munum auðvitað ræða þetta líka í bandorminum. Það var sem sagt niðurstaða nefndarinnar að fara með gjaldið niður í 1.600 kr. Ég er afskaplega ánægð með þann árangur sem við erum að ná með því. Þetta á eftir að skipta gríðarlega miklu máli af því að innviðagjaldið, eins og þið vitið, skiptir ferðaþjónustu á landsbyggðinni gríðarlega miklu máli. Innviðagjald er gjald sem skemmtiferðaskip í millilandasiglingum greiða við komuna til landsins og þau koma aðallega á þessar stóru hafnir, þau eru að koma á Ísafjörð, Akureyri, Seyðisfjörð, Vestmannaeyjar og fleiri staði og þau greiða þetta gjald við komuna í höfn. Þegar þau koma í höfn þá, eins og þið þekkið, taka á móti þeim íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sem sinna þessum farþegum, selja ferðir, selja þeim kajakferðir, gönguferðir og bara hvað sem er og við höfum séð efnahagslegu áhrifin af þessum gestum. Það er talað um að hver og einn gestur eyði yfir 20.000 kr., burt séð frá þessum ferðum sem þeir kaupa í landi, bara með því að vera á hverjum stað, kaupa sér mat, kíkja á veitingastaði og/eða kaupa sér drykki. Það er talið að hver og einn sé að eyða um 20.000 kr., þannig að þetta skiptir gríðarlega miklu máli.

Það er gaman að segja frá því hér í þessari umræðu að ég hef fengið hvatningu frá einum nefndarmanni í fjárlaganefnd, hv. þm. Eiríki Birni Björgvinssyni, um að skoða erfðafjárskattinn. Hann er til umræðu í bandormi tvö sem er nú til meðferðar í efnahags- og viðskiptanefnd og ég get sannfært hann eins og aðra þingmenn um að auðvitað fer efnahags- og viðskiptanefnd vel yfir það mál. Við erum búin að vera að taka á móti gestum og við hlustum auðvitað á þau sjónarmið sem þar komu fram og ég get fullvissað þingheim um að við munum skoða þetta mál af kostgæfni og vinna þetta af fagmennsku.

Við lok þessarar ræðu minnar þá vil ég bara enn og aftur þakka fyrir góðar umræður og málefnalegar og það er búið að vera gaman að vinna fjárlögin, bara virkilega gaman og gaman fyrir mig sem kem úr sveitarstjórnarpólitíkinni að fá að kynnast fjárlögunum, þau eru aðeins öðruvísi en þar en gangvirkið er auðvitað líkt. Maður þarf að temja sér tungutak fyrir svipaða hluti þannig að þetta hefur verið mjög lærdómsríkt og enn og aftur vil ég þakka öðrum nefndarmönnum í fjárlaganefnd fyrir gott samstarf.