fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Við sitjum nú saman í efnahags- og viðskiptanefnd. Mig langaði að fara aðeins yfir þessi fjárlög og stöðu landsbyggðarinnar. Eins og heyrðist á ræðu hv. þingmanns þá er hún mikill landsbyggðarmaður og ég tek alveg undir að það er mjög margt jákvætt í þessu fjárlagafrumvarpi hvað varðar landsbyggðina eins og hún fór yfir og ég tek undir þessi mikilvægu verkefni en þau mega sín svolítið lítils þegar kemur að öllum þeim milljörðum sem eru í skattahækkanir á landsbyggðina, hvort sem það er á fjölskyldurnar eða íþróttastarfið og hvað þá atvinnulífið. Eins og hv. þingmaður kom mikið inn á og það viðurkennist hér, þá gerði síðasta ríkisstjórn alger mistök í erfiðri stöðu að setja á innviðagjald á skemmtiferðaskip. Skattlagningin þar hafði gríðarlega neikvæð áhrif. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvaða áhrif hún býst við að það hafi á landsbyggðina þegar það er komið kílómetragjald, vörugjald og allar þær gjaldahækkanir sem eru lagðar til í tekjuöflunarfrumvörpum til að standa undir þessum fjárlögum. Þetta mun hækka allan ferðakostnað úti á landi fyrir vörur og þjónustu, mun draga úr fjölda ferðamanna, sem fara síður út á land, það verður dýrara að fá bílaleigubíl, það verður dýrara fyrir íþróttafélögin að ferðast á mót og lengi mætti telja.