fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og samnefndarmanni mínum í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir góða spurningu, en ég tengi nú ekki alveg og veit ekki alveg hvað hann á við með þessum barnasköttum. Hann verður kannski að skýra það aðeins betur í seinni spurningu. Hann biður mig samt um að setja upp landsbyggðargleraugun á vörugjöldin og svo á kílómetragjaldið, eðlilega, og mér er ljúft og skylt að verða við því. Það er auðvitað búið að greina áhrif kílómetragjaldsins, það var gert í vor. Inni á síðunni Vegir okkar allra kemur í ljós að hugmyndafræðin með kílómetragjaldinu, þeir borga sem nota, kemur bara býsna vel út fyrir landsbyggðina því ótrúlegt en satt þá keyrir landsbyggðin minna heldur en höfuðborgarsvæðið. Það er styttra í vinnuna og það eru almennt styttri vegalengdir þannig að það má segja að kílómetragjaldið sé í rauninni, samanborið við höfuðborgarsvæðið ef við erum að horfa á þetta með þeim gleraugum, ekki meira íþyngjandi á landsbyggðinni en fyrir höfuðborgarsvæðið. Það þarf þá eitthvað að skoða það, ég get ekki séð í gegnum þá röksemdafærslu hjá hv. þingmanni en hann hefur kannski önnur gleraugu.
Varðandi vörugjöldin þá leggjast þau ekkert sérstaklega á landsbyggðina. Þau eru bara að leggjast á nýja bíla. Auðvitað eru landsbyggðarmenn að kaupa sér nýja bíla eins og aðrir og við höfum ekki verið að greina það eftir landshlutum hverjir eru að kaupa nýja bíla. En við höfum verið að greina það og við fengum þær upplýsingar að 60% af nýjum bílum sem koma til landsins eru rafmagnsbílar. Mér finnst það frábær þróun. Fólk er að segja að það séu bara örfáir rafmagnsbílar í landinu. Það kom mér verulega á óvart að svona stór hluti af nýjum bílum skuli vera rafmagnsbílar sem, svo ég nefni það hér, verða undanþegnir vörugjöldum. Þetta er alltaf spurning hvaða gleraugu maður setur upp þegar maður er að skoða svona skattbreytingar.