157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:00]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er kannski kominn galsi í mannskapinn, heyrist mér, en það er alveg augljóst að við horfum ekki á þetta með sömu augum, ég og hv. þm. Vilhjálmur Árnason. Varðandi kílómetragjaldið þá er það búið að vera til umræðu lengi, þetta er líklega þriðja þingið sem það kemur hérna fram og við munum væntanlega eyða mörgum dögum í það þegar við afgreiðum það út úr nefndinni í vikunni. Það sem hv. þingmaður er væntanlega að vísa í er að nú þurfa aftanívagnar að borga. En þegar við erum að taka upp kerfi þar sem þeir borga sem nota, þá er það þannig, þeir borga sem nota. Núna eru aftanívagnarnir að borga í rauninni mjög lítið miðað við hvað þeir slíta vegunum. Það er auðvitað eðlilegt að þeir borgi meira. En svo er það auðvitað þannig, af því að ég veit að fólk hefur áhyggjur af vöruverði á landinu, (Forseti hringir.) að það má líka vísa í það að sem betur fer erum við með frábærar verslanir sem eru með sama verð um allt land.