fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir fína ræðu. Við höfum áður tekið umræðuna um innviðagjöldin og tollfrelsið í sambandi við fjármálaáætlunina nú í vor. Ég var þeirrar skoðunar hér síðasta haust að það væru mikil mistök að setja þau á. En við náðum að lengja í tollfrelsinu þannig að það er spurning hvort ekki sé hægt að hafa það með þeim hætti, með tollfrelsi eitt og eitt ár í einu, að gera það með fyrirsjáanleika. EES er ekkert að eltast við þetta mál. Það er bara misskilningur. Þannig að ég held að við ættum bara að klára það og fara í það mál.
Síðan varðandi sóknaráætlanirnar. Það getur verið að það sé bara svolítið slysalegur texti þarna í nefndaráliti fjárlaganefndar varðandi sóknaráætlanirnar, þ.e. „að fengnum umsögnum ráðuneyta“, sem sagt að þetta fari heim í hérað. Hækkað úr 120 í 400 millj. kr., umsagnir komi þar inn og síðan fari þetta heim í hérað að fengnum umsögnum ráðuneyta. Það er hægt að lesa út úr þessu með mismunandi hætti þannig að ég held að það sé mikilvægt að þessu sé komið á hreint, að fólk fái bara hreina mynd af þessu.
En síðan er kannski aðalatriðið varðandi þessa hugmynd, sem tengist þá meiri hluta fjárlaganefndar, hvort þar hafi komið fram vilyrði um að þetta yrði þá bara tekið inn á vegum framkvæmdarvaldsins, ráðuneytanna, vegna þess að annars lendum við í þessum sama hringlanda aftur. Á þetta þá að vera árlegt núna í fjárlaganefnd að samþykkja þessa leið? Þá er alltaf óvissan komin þangað í staðinn fyrir að vera með fyrirsjáanleikann. Það er eiginlega lykilatriðið þegar menn eru að breyta kerfinu að sá fyrirsjáanleiki komi fram í vinnslu þessa máls. Ég er hræddur um að fjármagnið minnki sem hefur verið að styrkja mjög mikilvæg verkefni vítt og breitt um landið á undanförnum árum, ef menn skoða í sögulegu samhengi þá styrki sem hafa komið, að þessi tala muni ekki duga fyrir því sem við höfum séð síðustu ár.