157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:03]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir mjög góðar spurningar. Það er auðvitað það sem maður sér. Við lentum í þessu með Ljósið, að það kemur þarna viðbótarframlag og svo gerir fólk bara ráð fyrir því en svo lendum við í vanda. Það er því kannski eðlilegt að þingmaðurinn velti því fyrir sér. Við ættum kannski að ræða það núna á milli umræðna af því að þetta er góð ábending hjá honum varðandi ráðuneytið og sóknaráætlanirnar. Auðvitað erum við að mælast til þess að þetta verði bara á valdi heimamanna, að ráðuneytið sé ekkert að skipta sér af því. En það er auðvitað eðlilegt að peningarnir fari inn í ráðuneytin og þau deili þeim út til landshlutanna.

Við höfum líka rætt það í í fjárlaganefnd, af því að það er auðvitað óboðlegt að ráðuneytin séu að vísa góðum verkefnum, sem hafa svo sannarlega sannað sig, inn í fjárlaganefnd til að sækja það fjármagn sem upp á vantar. Þetta eru bara óboðleg vinnubrögð. Við ræddum það í nefndinni og við höfum rætt það við ráðherrann í tilfelli sóknaráætlana og við verðum að gera betur í því. Við töluðum um að við þyrftum að fara núna á nýju ári og ræða þetta nýja vinnulag við ráðuneytin, að við séum þá bara með stóra rammann og við séum ekki í einhverjum svona minni styrkjum svo að við þurfum ekki að standa í þessu aftur.

Við heyrðum það í nefndinni að innviðaráðuneytið er líka mjög ánægt með sóknaráætlanirnar. Þá verður sú ánægja að endurspeglast í því að þau finni sóknaráætlunum pláss inni í rammanum sínum. Þetta er frábært verkefni og hefur breytt mjög miklu víða um land og það verður að sjást inni í rammanum hjá ráðuneytunum og þau verða bara að finna þessu stað. Þetta eru nefnilega frábær verkefni. Ég get ekki beðið eftir að mæla fyrir bandormi eitt, af því að ég er nefnilega ekki framsögumaður á kílómetragjaldinu, þannig að ég fæ ekki að mæla fyrir því. En ég er framsögumaður á bandormi eitt og þá getum við betur rætt tollfrelsi og innviðagjöld sem ég veit að við deilum áhuga á.