157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:07]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þarf kannski ekki að endurtaka það aftur sem ég sagði hér áðan um erfðafjárskattinn, hann er til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd í bandormi tvö. Við höfum verið með gestakomur og það var held ég síðast á föstudaginn sem við vorum með allan nefndardaginn undir fyrir gestakomur út af bandormi tvö. Þar var ekki bara verið að ræða erfðafjárskatt heldur líka önnur mál. Ég get bara sagt það hér við þingheim að þetta mál verður unnið faglega og við þurfum að skoða áhrifin af þessu. Við vorum með ákveðnar spurningar sem við erum að bíða eftir að ráðuneytið bregðist við, þannig að við vinnum þetta bara faglega eins og allt annað sem við gerum í efnahags- og viðskiptanefnd. Þar hefur líka verið mjög málefnaleg og góð vinna og góðar spurningar varðandi þessi mál. Þetta eru auðvitað stór mál sem um ræðir í efnahags- og viðskiptanefnd og við munum vinna þau vel eins og allt annað sem við gerum.