fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar erindi. Ég var búinn að punkta hjá mér nokkrar spurningar til hv. þingmanns en í ljósi orðaskipta milli hennar og hv. þm. Vilhjálms Árnasonar ætla ég að bíða með spurningarnar sem ég var búinn að punkta hjá mér. Það er náttúrlega með ólíkindum, frú forseti, að þurfa að hlusta á það aftur og aftur að fyrirhugað kílómetragjald sé ekki landsbyggðarskattur, byggt á þeirri forsendu að meðalakstur Íslendinga sé meiri á höfuðborgarsvæðinu en úti á landi, til að mynda á Djúpavogi. Þessi umræða snýst ekkert um það, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir. Hún snýst um það að enn er verið að ýta undir og skekkja samkeppnisstöðu landsbyggðarinnar. Annars vegar benda flestar umsagnir til þess að fyrirtæki sem eru í framleiðslu á landsbyggðinni telja þetta skekkja samkeppnisstöðu sína við að koma vöru sinni og þjónustu á markað. Bílaleigur benda á hvaða áhrif þetta muni hafa á ferðavilja túrista út á land, lengri vegalengdir og litla eftirspurn eftir bílum sem eru á þessum mæli. Þá er órætt líka um umsagnir sem benda til þess — sem ég er alveg sannfærður um að muni raungerast — að vöruverð hækki á landsbyggðinni, þrátt fyrir að hv. þingmaður hafi bent á að til eru verslanir hér sem keyra á sama vöruverði um allt land.
Síðan er hitt ósagt í málinu sem er að það fólk sem hér keyrir að öllu jöfnu meira, þ.e. fólk á höfuðborgarsvæðinu, hefur þó a.m.k. í flestum tilfellum valkost. Ég segi þetta líka vegna ummæla hv. þm. Dags B. Eggertssonar hér fyrr í umræðunni. Hér á höfuðborgarsvæðinu er hægt að taka almenningssamgöngur og velja það að (Forseti hringir.) nota bíl til að komast til læknis eða komast til sýslumannsins, sem að vísu á að fara að færa af landsbyggðinni, en úti á landi getur staðan bara hreinlega verið sú að það skiptir hundruðum kílómetra að sækja slíka þjónustu og þetta þekkir hv. þingmaður.