fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir fyrirspurnina en ég verð nú kannski að leiðrétta eitt hjá honum: Þjónusta sýslumanns er ekki að fara neitt, það þarf ekki að keyra neitt til að sækja hana, hún verður enn á sínum stað. En ég ætla að vona að þingmaðurinn sé sammála mér í því að öflugir og góðir innviðir, með góðum vegum, með jarðgöngum og góðum brúm, séu undirstaða samkeppnisstöðu landsbyggðarinnar. Ég ætla að vona að hann sé sammála mér í því. Til þess að geta gert það verðum við að fá tekjur af umferð, við bara verðum að gera það. Við höfum horft á þann tekjulið ríkissjóðs sem kemur af umferð og hann fer hríðlækkandi. Þess vegna erum við í þessari gríðarlegu innviðaskuld sem skaðar samkeppnishæfni landsbyggðarinnar. Þess vegna erum við að keyra á þessum ömurlegu vegum. Við verðum að fá tekjur af þessu, hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, og þetta veistu.
Kílómetragjaldið skekkir ekki samkeppnisstöðu landsbyggðarinnar. Ég ætla bara að vona að eftir einhver ár — og það kemur vonandi fram í nefndaráliti að við viljum láta meta kílómetragjaldið og þá mun það væntanlega koma í ljós. Það besta sem við getum gert fyrir samkeppnisstöðu landsbyggðarinnar er að bjóða upp á alvöruinnviði og það veit hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson.