157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:12]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þessi þvæla er orðin þreytt. Það er alveg sama hve oft þetta er sagt, þetta er jafn rangt fyrir vikið. Nú horfum við t.d. á að tekjur af ökutækjum eru áætlaðar um 80 milljarðar. Innan við 50 af þeim fara til samgöngumála. Hitt fer í eitthvað óskilgreint sem hæstv. ráðherra reyndi til að mynda að tengja við löggæslu hér í dag. Það eru bara aðrir skattar sem standa undir henni. Ef litið er til áranna 2014–2021 þá innheimtust um 750 milljarðar á því tímabili, 38–39% af því fóru til uppbyggingar samgöngumannvirkja.

Hv. þingmaður, það er verið að fara rangt með. Það er verið að búa til afsökun til að auka álögur þegar sannleikurinn er sá að það fé sem ökutækjaeigendur borga í þessu landi hefur ekki, í nægjanlega hárri prósentu, skilað sér til uppbyggingar á þessum samgöngumannvirkjum. Það er stóra staðreynd málsins. Þess vegna eru umsagnirnar eins og þær eru því að fólk er hætt að trúa því að lausnin sé alltaf það sem kallað er í dag á tískumáli aðhald á tekjuhliðinni.