fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég held að það hafi ekki verið nein spurning í þessu. Þetta var bara svona almennt rangt, eins og maður segir. En við verðum bara að vera ósammála um þetta. Mér finnst það bara algerlega óboðlegur málflutningur að segja öðrum megin að við þurfum að fá góða vegi, að við þurfum að fá brú yfir Skjálfandafljót, að við þurfum að fá þennan veg eða hinn malbikaðan og að það verði að fara í þessa tengivegi og héraðsvegi og allt þetta — það verða að koma tekjuráðstafanir á móti. Þetta er bara debet og kredit. Ég skil þetta bara ekki hjá hv. þingmanni. Mér finnst það eiginlega óboðlegt að heimta góða vegi öðrum megin og svo má ekki taka neinar tekjur fyrir þeim. Ég bara skil ekki svona málflutning. Fyrir mér snýst þetta um debet og kredit og við verðum bara að sækja peninga til að setja í þessa innviði. Ég held að landsmenn, þegar þeir sjá þessa bættu innviði — og ég fann það í sumar hvað þessir 3 milljarðar gerðu mikið. Ég sá það. Ég held að fólk sé til í þessa tekjuráðstöfun þegar það sér ávinninginn í bættum samgöngum.