157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:15]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum nú fyrstu fjárlög sem skattaríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hæstv. forsætisráðherra, leggur fram. Það var hæstv. fjármálaráðherra Viðreisnar, Daði Már Kristófersson, sem flutti þetta frumvarp og ber þannig ábyrgð á því. Nú hefur það farið í gegnum fjárlaganefnd Alþingis.

Ég vil byrja á að segja að við Íslendingar búum vel. Það er góð staða á Íslandi. Við skorum hvað hæst í flestum mælikvörðum sem við viljum skora hátt í hvað varðar velferð og hversu efnuð þjóðin er og vel hún stendur, þannig að við getum verið þakklát fyrir að búa í slíku samfélagi og þakklát að þjóna hér á löggjafarsamkomunni í slíku samfélagi sem býr við þann lúxus að hafa það verkefni að auka velferðina en ekki einhvern veginn að reisa hana eða búa hana til. Það er margt í þessum fjárlögum sem styður við velferðina og annað slíkt. Það hefur sem betur fer tekist vel á undanförnum árum, við skulum segja bara að á einum til tveimur áratugum hefur verið gríðarlega byggt undir grunnstoðir samfélagsins. Atvinnuvegunum hefur fjölgað, stoðunum sem skaffa verðmætasköpun sem gefur af sér tekjur í sameiginlega sjóði til að auka velferðina hefur fjölgað, þær hafa verið að styrkjast, sem er vel. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson, nefndarmaður í fjárlaganefnd, fór nefnilega vel yfir það áðan hvernig þetta hefur allt saman gengið vel og sem betur fer og þetta hefur verið mikilvægt og ég tek undir með honum. Þarna erum við að tala um það hvernig sjávarútvegurinn hefur styrkt stöðu sína gríðarlega og verið að eflast. Hann hefur eflst það vel að hann hafði svigrúm til fjárfestinga sem skapaði hér nýsköpun og vöxt í landinu.

Undanfarin ár hafa stjórnvöld gert nýsköpunarumhverfið þannig að risanýsköpunarfyrirtæki eins og Kerecis hafa sagt að það sé gott að vera nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi, út af því hvernig stjórnvöld hafa búið að því. Við höfum séð nýsköpunargeirann og skapandi greinar vera eina mest rísandi útflutningsgrein íslenskrar þjóðar og stækkar stöðugt og hefur verið að styrkja grunninn hér á landi. Svo hafa komið öflugar greinar eins og ferðaþjónustan sem er búin að vera með gríðarlegan vöxt. Ferðaþjónustan er ekki bara verðmætasköpun og ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs og þar með íslensks samfélags heldur gefur ferðaþjónustan okkur svo margt annað í breyttri menningu, aukinni þjónustu, aukinni byggðafestu og bara lífgar upp á íslenskt samfélag, gríðarlega mikilvæg grein.

Svo erum við náttúrlega með orkuna okkar sem hefur verið að byggjast jafnt og þétt upp síðustu áratugi og við höfum flutt hana út í gegnum stóriðjuna, helst í gegnum álverin. Svo komu kísilverin að einhverju leyti og núna gagnaverin ásamt öðrum iðnaði. Allt er þetta mikilvægt. Svo sjáum við afleiddar greinar sem við höfum þekkt eins og núna er fiskeldið að stækka og svona lengi mætti telja. Þetta skiptir okkur máli. Þetta hefur gert það að verkum að það hefur getað komið loðnubrestur án þess að það sjáist í hagtölunum. Það hafa getað orðið hér hin ýmsu áföll án þess að velferðin verði fyrir áfalli. Það er út af þessari uppbyggingu sem okkur hefur tekist svona vel. Þetta hefur tekist svona vel af því að við höfum sýnt fyrirhyggju með því að reyna að draga úr álögum á þessa atvinnuvegi. Við höfum verið að draga úr hindrunum og liðka fyrir þeim eins og í nýsköpuninni og verið að gera það með hvata og passa okkur á að ofskattleggja ekki þessa atvinnuvegi heldur gefa þeim frelsi til að vaxa, frelsi til þess að komast á fætur, frelsi til að verða öflugir og skapa verðmæti. Þannig höfum við, ásamt náttúrlega því þegar stöðugleikaframlögin og fleira kláruðust, náð að styrkja stöðu ríkissjóðs gríðarlega, borgað niður skuldir. Þá var hér lág verðbólga, lágir vextir í langan tíma og allt það, samhliða því að kaupmátturinn var aukinn. Samhliða þessari sterku og miklu uppbyggingu jókst kaupmáttur heimilanna með fjölda skattalækkana og breytingum á greiðslukerfum, dregið úr skerðingum og lengi mætti telja.

Af hverju er ég að fara yfir þetta allt hérna núna? Það er út af því að núna erum við með fjárlög fyrir framan okkur þegar nánast allar þær grunnstoðir sem ég nefndi hér áðan og er búið að vera að fjölga eiga í vanda. Það er pressa. Það er þrýstingur á öllum þessum stoðum. Það eru áskoranir, álögurnar á sjávarútveginn hækkaðar gríðarlega á sama tíma og laun hafa verið að hækka, á sama tíma og öll aðföng hafa verið að hækka, á sama tíma og aflasamdráttur hefur verið, loðnubrestur ár eftir ár. Nú er makríllinn og kolmunninn líka að dragast saman og áfram mætti telja, samdráttur í aflaheimildum, og álögurnar bara upp úr öllu valdi, bæði frá stjórnvöldum og utanaðkomandi á þá atvinnugrein.

Það eru bilanir og tollastríð og stríð og ytri áskoranir, verndartollar frá Evrópusambandinu á okkur, samstarfsþjóðina, þannig að stóriðjan er að glíma við stóra áskorun, orkuútflutningurinn okkar næsta árið. Ferðaþjónustan, þar er líka tollastríð. Þar er búið að hækka álögur mikið og margt um að vera í heiminum og samkeppnislönd okkar eru að taka fram úr okkur með aukinni markaðssetningu, veikari norskri krónu og lengi mætti telja. Hér hafa líka verið jarðhræringar sem settu strik í reikninginn og allt þetta.

Það er erfiðara að fá fjármagn inn í nýsköpunarfyrirtæki sem sést strax í færri umsóknum hjá Rannís og fleira af því að fjárfestingargeta íslenskra fyrirtækja er að dragast saman. Það eru alls staðar áskoranir þarna. Þá kemur hæstv. ríkisstjórn sem lofaði að hækka ekki skatta á almenning og fyrirtæki í þessu landi fyrir kosningar og ætlar að fjármagna þessi eyðslumiklu fjárlög sín, útgjaldavöxturinn er ótrúlegur milli ára, með því að seilast í vasa fjölskyldnanna í landinu og fyrirtækjanna í landinu, dýpra í vasa þeirra. Skattar, skattar, skattar. Þannig ætla þau að loka fjárlögunum, sækja skattana þegar þrengir að, og þegar þrengir að atvinnulífinu í landinu, sérstaklega útflutningsgreinunum, öllum útflutningsgreinum, sem eru okkur hvað mikilvægastar, það er engin velferð á Íslandi án útflutnings, þá þrengir að heimilunum líka. Þegar atvinnuleysi eykst þýðir það að færri hafa vinnu. Það eru minni tekjur til heimilanna þegar atvinnuleysi er að aukast. Það er bara þannig.

Núna þegar hefur verið verðbólga og háir vextir og það kreppir að í atvinnulífinu þá kemur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hæstv. forsætisráðherra, og leggur alla þá skatta á sem henni mögulega dettur í hug eða getur fundið. Það er búið að vera mjög erfitt á húsnæðismarkaði. Nei, þá ætla þau að láta séreignarsparnaðarleiðina renna út. Fyrir þá sem eru búnir að vera að nýta sér hana frá upphafi á hún að renna út, mikilvæg leið, ein skynsamlegasta leið sem ríkið getur haft og hún á að vera varanleg. Séreignarsparnaðarleiðin á að vera varanleg, að það sé hægt að greiða inn á húsnæði. Þetta er ein skynsamlegasta leið sem við getum sett fram, eykur sparnaðinn. Þetta eykur skatttekjur ríkissjóðs í framtíðinni af því að þetta verður til þess að fleiri borgi séreignarsparnað og fari inn í þessa leið. Þetta hvetur til sparnaðar. Þetta styrkir efnahagsástandið í landinu. Ef við hefðum ekki sett þessa leið fyrir tíu árum væru skuldir heimilanna 130 milljörðum hærri í dag. Hvernig væri efnahagsástandið hér ef heimilin skulduðu 130 milljörðum meira, eins og vextirnir eru búnir að vera og verðbólgan? Hvernig væri það?

Samsköttun hjóna. Það á bara að ráðast beint á grunneininguna, fjölskylduna. Þið megið ekki reka heimili í sameiningu, við skulum splitta ykkur í sundur. Þið megið ekki ráða því hvernig þið hagið ykkar högum best, kæra fjölskylda. Þetta er alger árás á ungt fjölskyldufólk sem er að klára háskólanám, sem er að eignast börn. Það er það sem við þurfum mest á að halda, að ungt fólk eignist sem flest börn. Það geta komið upp tímabundin veikindi og annað slíkt og jafnvel langvarandi veikindi líka og þá er samsköttun hjóna algjör lykill í því að láta enda ná saman. Það er fjöldi fólks búinn að hafa samband við mig þar sem annar makinn ákvað að klára háskólanám sitt eftir barneignir út af því að þau gátu nýtt sér samsköttunina, en ef það á að taka samsköttunina þá er forsendan fyrir því að klára háskólagráðuna farin af því að heimilið nær ekki endum saman, þökk sé ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Að seilast í vasa fjölskyldunnar, splitta þessari grunneiningu í sundur, það dugar ekki. Við skulum bara setja vörugjöld, hækka fjölskyldubílinn, hækka vísitöluna, hækka vextina aðeins í gegnum vörugjöld á bíla, tugprósentahækkun. Sá sem kemur verst út úr þessu er venjulegur fjölskyldubíll. Það stendur nefnilega í öðru frumvarpi sem sama ríkisstjórn leggur fram, um kílómetragjald, að það séu aðallega efstu tekjutíundirnar sem kaupi rafmagnsbíla og hafi efni á því. Við miðaldra hvítu karlarnir sem eru fyrir þessari hæstv. ríkisstjórn, við kaupum helst rafmagnsbílana. Svo koma vörugjöldin. Nei, þá skulum við gefa þeim afslátt og hækka á hina bílana, fjölskyldubílana. Það hækka allir bílar á eftirmarkaðnum líka. Látum fjölskylduna borga. En það hefur bara gríðarleg áhrif á atvinnulífið líka, ferðaþjónustuna. Þetta eru milljarðar sem fara, út af ferðaþjónustunni, út af hækkun vörugjalda, á sama tíma og hagnaður hefur dregist saman í ferðaþjónustunni um 56% og akkúrat ökutækjaleigunum um 73%. Þá skulum við setja vörugjöld og láta þau borga. Það fer að vísu líka á íþróttafélögin, í mótorsportið og allt, þar sem unga fólkið er, tökum smá vörugjöld af þeim, af íþróttaiðkun ungra barna, það skulum við gera, hvort sem það er mótorsportið eða til að ferðast til og frá.

Svo kemur kílómetragjald. Það er um að gera að hækka flutningskostnaðinn um 10% úti á landi. Það er alveg rétt að gamli dísiljeppinn úti á landi kemur ágætlega út úr þessu, fyrir utan bara allt báknið, að þurfa að skrá þetta, fá marga seðla frá bankanum upp á 34 kr. og fá eftirárukkun og allt það bákn sem fylgir þessu kílómetragjaldi. En þetta leggst mest á kostnað við flutning á því hráefni sem framleitt er úti á landi, hvort sem það er fiskur eða lax, eða steinull eða mjólkurvörur eða hvað það er sem við erum að flytja inn á markaðinn. Það verður miklu dýrara. Það verður ódýrara að byggja nýtt hús hér í höfuðborginni fyrir atvinnureksturinn úti á landi, svo allar nauðsynjavörur sem þarf til að vera úti á landi, t.d. öll aðföngin fyrir ferðaþjónustuna og annað slíkt, það verður miklu dýrari flutningskostnaður af því. Auknar tekjur af kílómetragjaldinu koma mest úr þessu, koma að vísu líka úr skipagasolíu sem getur ýtt hlutum að skemmtiferðaskipunum. Björgunarskipin, Landhelgisgæslan og fleiri fraktskip og uppsjávarskip eru byrjuð að taka olíu í Færeyjum út af því sem á að hækka þarna í kílómetragjöldum.

Þetta er ekkert hætt. Dúkkar ekki bara upp erfðafjárskatturinn líka. Allt í einu kemur hann. Fólk bara getur lent í stórskuld af því að einhver náinn ættingi fellur frá. Það er enginn fyrirsjáanleiki eða neitt. Það á að fara að breyta þessu öllu. Erfðafjárskatt á náttúrlega að leggja alveg niður. Það er bara ósanngjarn skattur sem á ekki að vera til. Það eiga vörugjöld af ökutækjum ekki heldur að vera. Það eiga bara ekki að vera nein vörugjöld. Svo er einn skattur í viðbót, af því að ég var nú að tala um séreignarsparnað og húsnæðismarkaðinn áðan, en það eru stimpilgjöldin. Þetta eru allt gjöld sem ég væri til í að sjá fara fyrir kattarnef. Svo var ein skattahækkun í viðbót á fjölskyldurnar í landinu sem Öryrkjabandalagið er nú ekki ánægt með né fleiri, þ.e. að hækka skatta á leigutekjur um 50%. 50% hækkun á skatti á leigutekjur. Takk fyrir takk. Fjölskyldan í þessu landi má bara ekki bjarga sér. Er ekki bara einhvers staðar í fjárlögunum, er hægt að athuga það, skömmtunarskrifstofa ríkisins? Það verður allt komið til ríkisins.

Svo dugar ekki að setja alla þessa nýju skatta fyrir hæstv. ríkisstjórn. Það dugar ekki heldur eru þau farin — það er kannski þess vegna sem hæstv. ráðherra sakaði mig um að vera með skáldsögu hér í dag. Þetta er kannski bara skáldsaga sem við erum að fjalla um hérna, allar þessar töflur og áætlanir um tekjur, af því að hæstv. ríkisstjórn er byrjuð að prenta peninga. Þau eru að tala um það að frá því í september þangað til núna í lok nóvember hafi þau tekið eftir því að aldurssamsetning þjóðarinnar væri öðruvísi og þurftu eitthvað að stilla líkanið sitt af og græddu allt í einu 2,1 milljarð aukalega í erfðafjárskatt, á milli umræðna, bara búa það til. Svo koma þau hér með vörugjöldin t.d., þar voru bara allt í einu skrifaðir 7,5 milljarðar en það tók rúman mánuð eða næstum einn og hálfan mánuð að útfæra hvernig þau ætla að ná í þessa 7,5 milljarða. Svo kom í ljós núna, búið að rökstyðja það svo oft, að þessir 7,5 milljarðar eru aldrei að fara að innheimtast og ekki virðisaukaskatturinn sem átti að fylgja honum heldur. Það er bara útilokað mál. Það er orðið svo augljóst. Nei, samt er gert ráð fyrir þessu hér. Svona æfingar eru ekkert annað en peningaprentun og fyrir alla þessa skatta og allar breytingar er ekkert raunverulegt áhrifamat.

Hvað mun þetta draga mikið úr þrótti atvinnulífsins? Hvað mun þetta hægja mikið á endurreisninni eftir þær áskoranir sem við erum í núna? Hvað munu tekjur ríkissjóðs dragast mikið saman út af þessari þrengingu að súrefninu til atvinnulífsins? Hver mun fjárhagsstaða heimilanna vera eftir þessar skattahækkanir? Hvað munu vanskil heimilanna aukast mikið? Það er ekkert áhrifamat eða um áhrifin á sveitarfélögin, ekki neitt.

Svo eru allir þessir skattar einhvern veginn réttlættir með alls kyns nöfnum en líka í hvað þeir eigi að fara. Af því að við ræðum hér fjárlögin þá ræddum við það mál löngum stundum í vor að það yrði að hækka veiðigjöldin af því að vegakerfið væri í rúst og þau ættu að fara í vegi úti á landi. Það voru rökin. Svo kom þetta fjárlagafrumvarp. Þá byrjaði maður að sjá það, já, það eru einmitt að fara um 7 milljarðar aukalega í vegina, eins og var sagt með sjávarútveginn, það sem hann borgar. Heyrðu, flott, þau stóðu við eitthvert loforð alla vega, það var bara vel gert. En svo eru sett hér kílómetragjöld og vörugjöld og almenn krónutöluhækkun um 3,7% á öll önnur gjöld af umferð þannig að þetta eru einhverjir 11 eða 12 milljarðar á umferðina. Það er sagt að þetta sé nauðsynlegt. Það er bara nauðsynlegt að setja þessa skatta á til að setja fé í samgöngumálin, bara algerlega nauðsynlegt. Þetta er bara lífsnauðsynlegt af því að hér eru vegirnir að grotna niður, hér þarf að setja allt í vegi en það eru samt bara peningarnir úr sjávarútveginum að fara í vegina. Það fer ekki króna af þessum 12 milljörðum í vegakerfið, ekki ein króna. Það stendur ekki steinn yfir steini hér.

Það sem ég hef áhyggjur af er hversu tæpt þetta stendur allt saman. Ég fór yfir það, við erum í grunninn með sterka stöðu og tekjurnar eru gríðarlegar sem ríkissjóður er með. Þær hafa verið að aukast undanfarið út af styrkari stoðum. En núna er ætlunin að auka þær með aukinni skattheimtu. Það hefur bara aldrei borgað sig. Við ræddum aðeins áðan, ég og hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, að skattar voru hækkaðir of mikið á skemmtiferðaskip á síðasta ári og það sýndi sig bara að skatttekjur sem ríkissjóður ætlaði að fá 1,7 milljarða út af — það hefur verið gerð hagfræðileg greining á því að þeir töpuðu 1,9 milljörðum á því að setja þá skattlagningu á, töpuðu 1,9 milljörðum á því að ætla að sækja 1,7. Hvaða afleiðingar mun þessi 30 milljarða skattahækkun, sem þetta fjárlagafrumvarp gerir ráð fyrir, hafa á heimilin í landinu og fyrirtækin? Ég hef verulegar áhyggjur af því.

Svo hef ég enn þá meiri áhyggjur af því líka hvernig þessum skatttekjum er öllum varið, forgangsröðun þeirra og öðru slíku. Því hef ég ekki trú á þeim áætlunum. Hér erum við að fjalla um fjárlög með útgjöld upp á tæpa 1.600 milljarða og tekjur upp á rúmar 1.600, þetta er á þessu bili og hér er verið að leita að einhverjum 100 milljónum til eða frá til þess að stöðugleikareglan, sem ég er farinn að kalla skattareglu ríkisstjórnarinnar, sé ekki brotin. Hæstv. ríkisstjórn setti í vor nýja skattareglu um það að þú þyrftir að vera innan vissra marka, útgjöldin mættu ekki fara umfram visst hlutfall af tekjum. Hvernig ætla þau að ná því? Það er með hagræðingu. Það þyrfti þá að hagræða, þyrfti að koma eitthvað á móti. Þá kom enn eitt nýyrðið, hagræðing á tekjuhliðinni. Öll hagræðing þessarar ríkisstjórnar er á tekjuhliðinni og hagræðing á tekjuhliðinni þýðir auknir skattar. Auknir skattar eru hagræðing á tekjuhliðinni. Það er engin hagræðing á útgjaldahlið. Við horfum hér fram á að vera komin í 2. umræðu fjárlaga með 0 kr. svigrúm til að gera nokkrar breytingar. Það er 0 kr. svigrúm eins og þessu er stillt upp hér til að bregðast við samsköttun hjóna, vörugjöldum, kílómetragjaldi, leiguskatti, og ef við vildum ganga lengra, t.d. eins og að lækka erfðafjárskatt eða stimpilgjöld og annað, þá er bara ekkert svigrúm samkvæmt skattareglu ríkisstjórnarinnar. Þetta er svo tæpt. Það er ótrúlegt að við séum í þessari stöðu. Við myndum þá halda að þegar við erum með 1.600 milljarða tekju- og útgjaldafjárlög hér að það hefði nú verið hægt að að hagræða eitthvað. Hin samhenta ríkisstjórn, verkstjórnin sem ætlaði að hjóla beint í að hagræða, hefur enn þá ekki komið með eina útfærða hagræðingartillögu, ekki eina. Eina hagræðingartillagan sem við höfum séð, sem er bara held ég ágætistillaga, er að stytta atvinnuleysisbótatímabilið. Það frumvarp er ekki einu sinni komið fram. Hin samheldna verkstjórn sem ætlar að láta verkin tala.

Að öðru leyti hefur ríkisstjórnin hvergi sýnt á spilin um að draga saman útgjöld ríkisins. Kannski til að vera sanngjarn þá kláruðu þau vissulega verk fyrri ríkisstjórnar að selja Íslandsbanka. Það lækkaði skuldirnar og þá lækkaði vaxtakostnaðurinn. Þarna þurfum við að halda áfram. Við þurfum að halda áfram að losa eignir og greiða niður skuldir og lækka þá vaxtakostnaðinn. Það er ein hraðvirkasta og skynsamlegasta hagræðingaraðgerð sem hægt er að gera. Þar erum við að tala um einhverjar upphæðir og við erum að tala um að draga úr áhættu og við erum líka að tala um að koma aukinni viðspyrnu inn í íslenskt atvinnulíf og íslenska verðmætasköpun.

Svo höfum við rætt mikið í þeirri nefnd sem ég stýri, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hvernig hægt sé að draga gríðarlega úr sóun í ríkiskerfinu. Það er nú talað í nefndaráliti 3. minni hluta um að nýta tækni eins og Ráðhildi og annað slíkt. Þar er hægt að spara gríðarlega fjármuni ef öll ráðuneyti og allar undirstofnanir ráðuneytanna færu markvisst í það að tryggja að það sé engin sóun innan sinna raða. Við höfum fengið skýrslu eftir skýrslu frá Ríkisendurskoðun og það hafa verið að koma upp mál hér sem við höfum verið með til skoðunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem er bara ótrúleg sóun í gangi. Það eru gerðir risastórir samningar eða viðskipti án samningagerðar, án útboðs og án verksamninga og alls kyns svona sem kostar okkur skattgreiðendur gríðarlega peninga. Við verðum að fara vel með hverja einustu krónu og forgangsraða henni þannig að hún skili helst tveimur krónum til baka í okkar velferð. Þannig þurfum við að gera þetta.

Það væri hægt að halda margar og langar ræður um það hvernig við getum farið betur með opinbert fjármagn og með skattpeninga almennings og þá þyrftum við ekki að auka svona skattana. Ég vil bara benda á að það sem ég er að fara yfir hefur bara verið nýtt síðasta áratuginn. Skattar hafa verið lækkaðir gríðarlega, losað um eignir og fengin stöðugleikaframlög og annað þannig að skuldir voru greiddar niður, það var stöðugleiki og lágir vextir og lág verðbólga og allt þegar koma hér tvö stríð, það kom Covid og það komu jarðhræringar á mínu heimasvæði, Grindavík og nágrenni. Þar var beinn kostnaður ríkissjóðs 400 milljarðar. Er ekki verið að tala um að skuldin í innviðum landsins sé um 290 milljarðar? En bara beinn kostnaður af þessum tveimur atburðum, Covid og jarðhræringum, var 400 milljarðar. Samt náðum við að verja heimilin og verja fyrirtækin í landinu. Viðsnúningurinn og viðspyrnan eftir Covid var gríðarlega hröð hér, hraðari en víðast hvar annars staðar. Við náðum að hafa kaupmátt allan tímann, við náðum að hafa hagvöxt allan tímann af því að við vorum með sterkan ríkissjóð.

Núna eru áskoranirnar að hrannast upp. Þá erum við að skila hér fjárlögum alveg á ystu nöf, búið að taka alla varasjóðina í eyðslu ríkisstjórnarinnar. Það er hvergi neitt sem má bregða út af. Við þurfum núna á atvinnulífinu að halda til að standa undir því að skaffa heimilunum í landinu störf og lífsviðurværi, skaffa verðmæti fyrir velferðina í landinu. En þá þrengjum við að þessu öllu með hærri sköttum. Það er þetta sem ég hef áhyggjur af. Þannig er hringrás ríkisfjármálanna. Það koma hæðir og það koma lægðir. Núna er því miður ágjöf og það er ekkert gert til þess að reyna að sýna hér ábyrg ríkisfjármál með því að laga til í ríkisrekstrinum, sýna alvöruhagræðingu, alvarlega ábyrgð í ríkisfjármálunum. Það hefði verið hæglega hægt að koma ríkisfjármálum fyrir þannig að þeim væri ekki skilað með halla. Bara bein útgjöld milli ára, ef við sleppum verðlagsbreytingum og launauppbótum og öðru er hrein viðbót 90 milljarðar í útgjöld, 90 milljarða raunaukning. Það er svolítið sárt að þurfa að horfa upp á það að eina ástæðan fyrir því að verðbólgan og vextirnir séu byrjuð að lækka séu áskoranir atvinnulífsins, að við séum að fá harða lendingu í staðinn fyrir að stjórnvöld hafi reynt að aðstoða við mjúka lendingu þegar þessi áföll koma, að draga úr álögunum, gefa atvinnulífinu þrótt þannig að hin ytri áföll verði bara mjúkt áfall en ekki hart áfall og gera það þannig. Nei, það er bara allt sett á fulla ferð, skattar, skattar, skattar, sagðir vera fyrir innviði en eru ekki settir í innviði.

Nú hefur frést að það verði kynnt hér samgönguáætlun á morgun. Þá vil ég bara benda á að það eina sem ég sé í þessum fjárlögum að sé nýtt til samgöngumála, einhverjir auknir fjármunir, eru rúmir 7 milljarðar í viðhald á vegum og aukna þjónustu á vegum. Það er það eina sem er hér. Hitt á að byggjast á einhverju innviðafélagi. Ég styð alveg að það komi innviðafélag, enda samþykkti þingið 2019 hvernig það ætti að vera fjármagnað og annað. Það var talað um þetta innviðafélag í fjármálaáætluninni í vor og þetta átti allt að koma í haust. Maður hefur hvergi séð einu sinni hver hugmyndin með þessu innviðafélagi er, bara talað um innviðafélag. Við erum að ræða hér fjárlög og það er ekkert hægt að bregðast við því ef innviðafélagið kemur ekkert næsta árið. Ef það vantar eitthvað í samgönguáætlun á morgun þá getum við ekki brugðist við því. Alla vega eru þessir 12 milljarðar sem eru auknar skatttekjur á fólk og fyrirtæki ekki að fara í það.

Ég hef aðallega í þessari ræðu minni verið svolítið í stóru myndinni, hvaðan og hvernig við fáum tekjurnar og hvernig við hlúum að þeim grunnstoðum sem skaffa tekjurnar, bæði til heimilanna og til ríkissjóðs, og hvernig það er. Ég hef áhyggjur af þeim álögum sem eru settar þannig að þær geti dregið úr kraftinum í atvinnulífinu, sett heimilin í erfiðari stöðu. Þegar íslenskt efnahagsumhverfi er í svona ágjöf eins og er þá er svolítið vont að hafa fjárlögin svona á tæpasta vaði, búið að keyra alla varasjóði niður. Það er ekki búið að hemja nein útgjöld, bara búið að auka þau þannig að það er engin ábyrgð í þessu. Atvinnulífið með áföll er bara látið sjá um að kæla hagkerfið í staðinn fyrir að tryggja hér mjúka lendingu og sterkan viðnámsþrótt. Þetta er það sem ég hef áhyggjur af í þessu.

Ég hef líka miklar áhyggjur af því að það er ekkert áhrifamat eða allar þessar umsagnir og allt sem er búið að koma þar sem sagt er að þessar tekjur muni ekki koma, þetta muni hafa neikvæð áhrif, að þetta séu ekki réttir útreikningar, ekki réttar aðferðir, það er ekki hlustað á neitt af þessu. Að sjálfsögðu vonar maður að þetta fari allt saman vel. En ég hef áhyggjur.

Eins og ég segi og hefur margoft verið sagt hér í dag munu tekjurnar upp á 7,5 milljarða af vörugjöldunum ekki berast. Virðisaukaskatturinn mun því dragast saman líka. Afgangurinn af rekstri fyrirtækjanna mun dragast saman og þá dragast skatttekjurnar af því saman. Það verður erfiðara að fá hér ferðamenn. Það verður dýrara að búa úti á landi, það verður dýrara að stunda íþróttir og þetta einhvern veginn verður allt miklu erfiðara. Við höfum öll tækifæri, eins og ég fór yfir í byrjun, við erum heppin að búa á Íslandi, hér höfum við þvílíku tækifærin, hér erum við með þvílíka velferð þannig að við þurfum ekki að vera að gera okkur þetta svona erfitt eins og þetta fjárlagafrumvarp gerir ráð fyrir. Þarna er munurinn á hægri og vinstri, þarna bara sést að við erum augljóslega með vinstri stjórn hér sem sér ekkert nema skatta, skatta, skatta, hefur ekki komið með eitt mál til þess að auðvelda íslensku atvinnulífi, ekki eitt. Það kannski kemur jú í bandormi efnahags- og viðskiptanefndar tillaga um að lækka aðeins gjald á skemmtiferðaskip en öðru man ég ekki eftir til þess að auðvelda atvinnulífinu. Þetta eru bara ekki góð merki. Hjá hægri stjórninni sem við höfðum í fjármálaráðuneytinu síðustu 12 árin voru skattarnir lækkaðir, viðnámsþrótturinn gerður þannig að þessir atvinnuvegir stækkuðu og styrktust og það er leiðin sem Sjálfstæðisflokkurinn vill fara í ábyrgum efnahags- og fjármálum.