157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:55]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir allyfirgripsmikið erindi. Sumt í erindi hans kallar á spurningar en annað hér um bil á samsvörun og ég læt því kannski samsvörunina liggja á milli hluta. Að sjálfsögðu langar mig að nefna, af því að ég tók ekki eftir því að hv. þingmaður hefði tæpt á því í umfjölluninni um erfðafjárskattinn, það kann að vera að ég hafi verið of niðursokkinn í að lesa eða eitthvað slíkt en ég náði ekki hvort hv. þingmaður fjallaði um hvaða afleiðingar þetta kann að hafa á kynslóðaskipti, sem eru reyndar að mínu mati algerlega fyrirséðar. Ég vil nefna í því samhengi að þær reglur sem gilda í dag eru að ljúka þarf slíkum skiptum milli kynslóða, jarðamálum og slíku, innan 40 daga, ef ég er með réttar upplýsingar þar um, en í núverandi frumvarpi er það fært í sex ár.

Mig langar að teikna upp tilbúið dæmi. Segjum að lítið sauðfjárbú sé komið í erfðaferli. Velta á slíku búi er eðlilega lítil. Þetta kann að vera landmikil jörð en veltan er lítil. Það eru þrjú systkini, eitt er tilbúið til að halda áfram en tvö ekki og farið er í eitthvert verðmat eins og boðað er í þessu, ekki bara fasteignamat eins og var. Síðan líða tvö, þrjú, fjögur ár. Þá kemur systkinið, annað tveggja, sem ekki tók við og vill að farið verði í að endurmeta þetta í ljósi þess að fram hafi komið að aðstæður til skógræktar á jörðinni væru afar góðar, sem auki verðmæti jarðarinnar. Þá sé lækurinn á jörðinni líklega virkjanlegur líka sem auki enn á virði jarðarinnar. Þá þarf væntanlega að endurverðmeta þann stofn sem stendur á bak við arfinn. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að slíkt sé yfir höfuð framkvæmanlegt?