157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:58]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu. Hæstv. ráðherra segir um erfðafjárskattinn að þetta sé bara tæknileg breyting en ekki aukinn skattur, sem er alveg ótrúlegt. Skattar eiga að vera mjög skýrir. Þeir eiga að vera skýrir og á að vera augljóst hvernig þeir eru lagðir á. Vandamálið við þetta frumvarp hæstv. fjármálaráðherra um erfðafjárskattinn er hversu óljóst það er. Það er bara sagt að það eigi að borga markaðsvirði við sölu á landi en ekki fasteignamat sem hefur alltaf verið og er lögbundið, skýrt og gagnsætt. Er landið bújörðin, er það ræktarlandið eða landið undir íbúðarhúsinu? Er verið að tala um landið undir sumarbústaðnum mínum eða landið undir húsinu mínu? Hvaða land er verið að tala um? Það er ekki hægt að segja. Ef þetta leggst sérstaklega á bújarðir þarf að fá matsmann og þetta tekur allt of langan tíma, eins og hv. þingmaður kom inn á. Segjum að einstaklingur erfi bújörð, sauðfjárbú, og þurfi allt í einu eftir eitthvert mat sem enginn vissi fyrir fram hvert væri að borga tugi milljóna í erfðafjárskatt af búinu. Það er ekkert víst að rekstrargrundvöllur sé fyrir búinu áfram. Allt þetta er óljóst og engu af þessu sem ég velti upp er svarað í frumvarpinu, engu. Sýslumennirnir sem sjá um þessa framkvæmd um landið allt eru gjörsamlega agndofa yfir þessu ef umsögn þeirra við frumvarpið er lesin.