fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það var svo sem ekkert í því svari sem kom mér á óvart. Það eina sem kemur mér á óvart er að frumvarpið og öll vinnan á bak við það skuli ekki hafa séð þessar sviðsmyndir fyrir.
Mig langar í seinna andsvari mínu að koma inn á annað sem við höfum aðeins skipst á skoðunum um, hið margumtalaða frumvarp um kílómetragjald. Ég vitna þar í viðtal sem tekið var 23. október síðastliðinn við Steingrím Birgisson, forstjóra Hölds – Bílaleigu Akureyrar. Hann fer ágætlega í þessu viðtali yfir annars vegar vörugjöldin og hins vegar kílómetragjaldið. Með leyfi forseta langar mig að grípa örstutt niður í þetta viðtal:
„Til að bæta gráu ofan á svart segir Steingrímur að stjórnvöld hyggist einnig innleiða kílómetragjald á alla bíla – fyrst allra þjóða. „Þessi nýja gjaldtaka mun auka kostnað verulega og er kynnt með afar stuttum fyrirvara. Í samanburði má nefna að Holland og Sviss eru að skoða sambærilegt gjald, en horfa til ársins 2030 …““.
Erum við að mati hv. þingmanns að horfa upp á það gerast aftur að við getum ekkert lært af því stórslysi sem varð á síðasta kjörtímabili, sem hv. þingmaður tók á kassann í ræðu sinni, þegar gistináttagjaldið eða innviðagjaldið svokallaða á skemmtiferðaskipin var innleitt, sem kom fyrirvaralaust á ferðir sem þegar var búið að selja? Það er nefnilega það sama sem kemur fram í þessu viðtali sem ég vitna í við Steingrím Birgisson, verið er að kvarta undan skorti á fyrirsjáanleika. Það er að stórum hluta búið að selja vöruna fyrir næsta ár. Ég spyr því hv. þingmann: Er lærdómsgetan í þessum sal virkilega ekki meiri en þetta?