157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[23:02]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt hjá hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni að lærdómsgetan hér er ekkert svo mikil en þó mun meiri heldur en í Stjórnarráðinu þar sem þetta hefur verið margra ára barátta og pirrað okkur þingmennina mikið. Auðvitað er það alltaf á ábyrgð ráðherra hverju sinni og hverrar ríkisstjórnar, með starfsfólki þeirra, hvernig þau koma með þetta með allt of stuttum fyrirvara. Þetta er íslensk lenska sem er ekki góð. Hún er bara vond og hana verður að stöðva. Með kílómetragjaldið þá gleymist alltaf í þeirri umræðu, og aðrar þjóðir eru mögulega eitthvað byrjaðar að skoða það, sú áskorun sem við stóðum frammi fyrir; að stór hluti bílaflotans greiddi ekkert fyrir notkun á vegakerfinu. Þannig var það orðið. Þá var farið af stað með að smíða þetta blessaða kílómetragjald. Nú er búið að innleiða það á rafmagnsbílana og búið að hækka aðeins vörugjöldin á þá og bifreiðagjöldin. Vandamálið sem var verið að leysa er búið að leysa þannig að gjaldið þarf ekki að fara á alla hina bílana. Það er það sem Bretar og fleiri eru að skoða; að byrja hjá þeim sem borga ekki neitt, fara varlega og einmitt, eins og hv. þingmaður kom inn á, gera það með einhverjum löngum fyrirvara. Bara á þeim þremur árum frá því við byrjuðum að ræða kílómetragjaldið hér hefur alltaf komið betur og betur í ljós hversu mikið bákn og flækjustig þetta er og óþarfarugl. Það er líka rétt sem hv. þingmaður kemur inn á, þetta fer inn í verðteygnina. Ferðamenn velja því frekar að fara til Noregs þar sem bílaleigubíllinn er ódýrari. Þetta fer inn í verðteygnina og ef þetta verður tekið upp og kemur inn strax á vöru sem er búið að selja (Forseti hringir.) mun íslensk ferðaþjónusta tapa mörghundruð milljónum ef ekki milljörðum.