fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir prýðisgóða ræðu. Mig langar að koma inn á nokkur atriði. Hv. þingmaður nefndi að stöðugleikareglan væri eitthvað sem hann væri farinn að kalla skattareglu. Ég get tekið undir það. Þegar ég heyrði fyrst af þessari reglu þá fannst mér það hljóma ágætlega að hafa einhvern hemil á útgjöldum en eftir því sem maður er farinn að sjá hvernig hún virkar þá er hún eiginlega orðin meinsemd. Þegar við erum með vinstri stjórnir eins og núna sem geta bara ekki annað en aukið útgjöld þá þarf að bæta við skattahækkunum til þess að þau rúmist innan stöðugleikareglunnar. Þetta er því eiginlega orðið útgjaldahvetjandi vegna þess að enginn virðist hugsa: Við ætlum ekki að auka útgjöld. Frekar er hugsað: Við ætlum bara að vera innan einhverrar reglu þannig að við getum eytt eins og við viljum af því að við getum aukið skatta eins og við viljum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það hafi ekki verið réttur skilningur hjá mér að hann kalli þetta skattareglur vegna þess og hvort við séum ekki algerlega á sömu línu.
Svo langaði mig einnig til að spyrja hv. þingmann út í það að nú er gert ráð fyrir 25 milljörðum í skattahækkanir sem liggur samt alveg fyrir að munu ekki skila sér í ríkissjóð. Tekjurnar sem gert er ráð fyrir munu ekki skila sér í ríkissjóð út af hegðunarbreytingum, af því að hegðunarmynstrið breytist út af þessum skattahækkunum, samanber bílana sem við heyrum að verið sé að flytja inn. Þá spyr ég: Er eðlilegt að við skulum ekki fá uppfærða áætlun núna og erum við ekki farin að brjóta stöðugleikaregluna vegna þessa?