157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[23:07]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek heils hugar undir með henni. Það var nákvæmlega út af þessu sem við óttuðumst stöðugleikaregluna. Við óttuðumst það þegar stöðugleikareglan var sett á að hún yrði skattahvetjandi. Sú hefur orðið raunin og því er hún ekki annað en skattaregla, af því að við hver einustu útgjöld sem þessari ríkisstjórn dettur í hug eða notar til þess að halda sér saman eru skattar hækkaðir á móti. Það sem verra er að þegar þau hækka skattana fara þau með einhvern skáldskap um hvað tekjurnar myndu gera. Ef maður les allan rökstuðninginn, t.d. með vörugjöldunum — ég las hann aftur síðast í dag, virðulegur forseti, og hann fer bara í hringi eins og Cheerios-framleiðsla. Þau segja: Við ætlum að fá tekjur þarna en við ætlum samt að gefa tekjurnar til að láta alla fá rafmagnsbíla, sem borga engin vörugjöld. Við ætlum að auka tekjur um 7,5 milljarða en láta þær frá okkur af því að allir eiga að kaupa rafmagnsbíla. Það fer ekki saman hljóð og mynd hjá þeim. Engin rök fyrir þessu standast. Nú er aukningin á skatttekjum komin upp í 30 milljarða; 30 milljarðar í skattaaukningu. Hún mun náttúrlega ekki skila sér. Þegar þau haga sér svona, þegar allir hagaðilar, allir umsagnaraðilar, allir fjölmiðlar og allir nema þau sjálf taka eftir því að þessar tekjur muni ekki koma, af hverju ættu Seðlabankinn, greiningardeildir, fjármálastofnanir og aðrir sem gefa út verðbólguspár og annað slíkt að taka þessi fjárlög alvarlega? Það sjá allir að þau standast ekki. Það er ekkert áhrifamat. Við höfum kallað eftir því í vinnunni í þinginu að fá rökstutt hvernig þetta á að standast en því er neitað. Það þarf ekki að endurskoða þetta, segja þau.