fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka fyrir greinargott svar. Það sem mig langar að spyrja um í seinna andsvari kemur í kjölfar þess að ég átti orðastað við hæstv. fjármálaráðherra, Daða Má Kristófersson, fyrr í dag og spurði hann af hverju þau væru að svíkja loforð þess efnis að þau ætluðu ekki að hækka skatta. Svar hans var að hluta til á þá leið að það væru eiginlega ekki þau sem væru að hækka skattana vegna þess að fyrri ríkisstjórn hafði boðað kílómetragjald og þau væru bara að framfylgja því. Í þessu ljósi er mér minnisstætt að hv. þm. Vilhjálmur Árnason hefur alltaf verið á móti því máli og málið hefur tekið ansi miklum breytingum. Eftir þær breytingar var málið skárra en engu að síður fór það ekki í gegn af því að ekkert land í heiminum, ekkert, er búið að taka upp svipaða kílómetraskatta. Einhver lönd eru að skoða að taka það upp á bifreiðar sem ganga alfarið fyrir rafmagni en það á að gerast eftir nokkur ár og yfir nokkurra ára tímabil.
Ráðherra svaraði því einnig að þetta væru 11 milljarðar. Þá held ég að hann sé að taka vörugjöldin inn líka. Því spyr ég: Kannast hv. þingmaður við það að Sjálfstæðisflokkurinn eða fyrri ríkisstjórn hafi boðað þessa 7,5 milljarða í vörugjöld eða áttar hann sig á því hvað ráðherra meinti? Er líklegt að embættismennirnir hafi bara viljað klára þetta? Fyrri ríkisstjórn má þó eiga það að hún kláraði ekki málið af því að það var meingallað. Málið er enn þá meingallað. Ríkisstjórnin veit það en hún ætlar samt að keyra það áfram. Hvernig stendur á því? Áttar hv. þingmaður sig á því?