fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir þessa góðu spurningu. Ég kannast við það að fyrri ríkisstjórn setti inn í fjármálaáætlun sína að auka þyrfti tekjur af nýorkubílum og af umferðinni til þess að standa undir vegakerfinu. Það var ein af áskorununum þegar svo margir voru komnir sem fóru ekki á dæluna, voru sparneytnari og annað slíkt, að þá kæmu minni tekjur af notkun á vegakerfinu. Þá byrjaði þetta blessaða kílómetragjald í smíðum. Það var ákveðið að setja það fyrst á rafmagnsbílana af því að þeir voru ekki að borga neitt og sjá svo hvernig kerfið reyndist. Síðan hefur komið í ljós að það kerfi er visst bákn og flækjustig þess er mikið en það gengur alveg upp fyrir rafmagnsbílana af því að þeir eru miklu færri, miklu einsleitari og eru ekki til í eins miklu magni hjá fyrirtækjum. Fyrirsjáanleikinn er þá kominn ef þetta eykst og annað slíkt. Með því byrjuðu rafmagnsbílar og nýorkubílar líka að borga vörugjald. Sett var á 5% vörugjald, svo var ætlunin að hækka það upp í 10%, minnka hin vörugjöldin og láta þetta jafnast út. Svo var líka hugmynd sem búið var að samþykkja að setja á veggjöld og þegar veggjöldin væru komin í fulla framkvæmd yrðu vörugjöldin, bifreiðagjöldin og önnur tekin í burtu. Þetta var sú vegferð sem var komin af stað. Svo kemur núverandi ríkisstjórn. Þegar við ákváðum að fresta í síðustu ríkisstjórn kílómetragjaldinu þá tókst það af því að komið var kílómetragjald á rafmagnsbíla, búið var að hækka bifreiðagjöldin og setja á vörugjöldin. (Forseti hringir.) Því var búið að loka þessu gati sem var komið í tekjurnar af umferðinni. (Forseti hringir.) Þau eru að reyna að loka því aftur af því að þau vantar pening. Þau vantar pening fyrir eyðslunni. (Forseti hringir.) Öll þessi rök þeirra eru því alger tilbúningur.