Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það tíðkast á mínu heimili við kvöldverðarborðið að fara svona þakklætishring þar sem hvert og eitt á heimilinu rifjar upp eða nefnir eitthvað sem það er sérstaklega þakklátt fyrir þann daginn. Stundum er þetta ekkert merkilegt. Unglingurinn á heimilinu talar t.d. um að hann sé þakklátur fyrir starfsdaginn í skólanum eða flensuna sem gengur nú yfir í Réttó. En stundum kemur eitthvað sem leiðir til bitastæðra umræðna eins og til að mynda yngsta dóttirin sem talaði um það um daginn að hún væri þakklát fyrir að búa í landi sem skoraði hæst í heiminum þegar kemur að jafnréttismálum og nefndi líka sérstaklega að það væri dásamlegt að búa í landi sem Sameinuðu þjóðirnar meta sem besta land veraldar til að búa í. Ég þakka þetta náttúrlega núverandi ríkisstjórn sérstaklega og sérstaklega þingflokki Viðreisnar og alveg sérstaklega í Reykjavík suður. En svona án gríns þá er málið að það er gott að búa á Íslandi. Það er ótrúlega gott að búa á Íslandi og það eru margir sem vilja flytja hingað. Það er einstaklega gott að búa í Reykjavík því að hingað flykkist fólk og það eru kannski bestu meðmæli sem hægt er að fá þegar fólk greiðir atkvæði með fótunum.
En þessu fylgja líka vaxtaverkir, virðulegur forseti, því að við sjáum augljósa þörf á uppbyggingu húsnæðis, samgönguinnviða, leikskóla og fleira. Fram undan í Reykjavík er þess vegna mikil og mjög hröð uppbygging, til að mynda í Úlfarsárdal, Keldnalandi og víðar. Það er mjög vandasamt fyrir sveitarfélag að vaxa hratt. Það höfum við séð, ekki bara hér heldur um allt land. Og raunar er það þannig að nær öll sveitarfélög sem hafa upplifað mikla og hraða uppbyggingu hafa lent í erfiðleikum með að halda sig undir skuldaviðmiðum sveitarfélaga. Meginástæðan er sú að þau þurfa að fjárfesta mjög hratt í alls konar innviðum á skömmum tíma, innviðum sem síðan skila af sér tekjum yfir áratugi eða jafnvel lengri tíma. Önnur ástæða er sú að af hverjum 100 milljónum sem sveitarfélögin fjárfesta í innviðum fara 25 milljónir lóðbeint til ríkisins og Ísland er eina landið innan Norðurlandanna þar sem ástandið er þannig að ekkert af þessu kemur til baka. Þau geta ekki innskattað á móti virðisaukaskatti. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Það er endurtekin staða að sveitarfélög verða fyrir vaxtarverkjum við mikla fjölgun íbúa eins og nú er í Reykjavík. Því er nauðsynlegt og allra hagur þegar slíkar aðstæður skapast að ríki og sveitarfélög setjist niður og tali saman (Forseti hringir.) og sameinist um lausnir sem virka.