157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Karólína Helga Símonardóttir (V):

Frú forseti. Mig langaði að nýta þessar tvær mínútur hér í ræðustól til þess að ræða aukin framlög í fjárlögum 2026 til sjúkraflutninga og heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Í dag er sjúkraflutningum að mestu sinnt með sjúkrabílum auk sjúkraflugsþyrlu. Fyrir þann hluta Íslendinga sem býr á höfuðborgarsvæðinu leiðum við ekkert endilega hugann að sjúkraflutningum þar sem sjúkraflutningar innan Reykjavíkur taka innan við tíu mínútur og eru oftast með sjúkrabíl. Á mörgum dreifbýlum svæðum á Íslandi eru sjúkraflutningar háðir því hvort á svæðinu búi fólk með reynslu af sjúkraflutningum og umönnun veikra einstaklinga og hvort fólk hafi tök á að vera á bakvakt. Öflugt viðbragð og sjúkraflutningar eru líka bundin við öruggar samgöngur. Það má ekki vera háð því hvort þyrlan sé laus eða hver kemst í útkall.

Ég hef upplifað á eigin skinni að hver mínúta skiptir máli þegar einstaklingur fær hjartastopp. Síðastliðið sumar gerðist það þegar mamma mín, Birna, fór í hjartastopp í sumarhúsi sínu undir Eyjafjöllum. Fyrstu menn komu eins fljótt og kostur var og gáfu allt í að bjarga mannslífi en tíminn og fjarlægðin voru ekki með okkur í lið. Ég get alveg viðurkennt það að ég velti fyrir mér hvort það hefði farið öðruvísi ef hún hefði farið hjartastopp á höfuðborgarsvæðinu. Ísland er dreifbýlt land með misgóðar samgöngur. Það þarf að huga sérstaklega að landsbyggðinni í þeim efnum. Hér er stigið mikilvægt skref í að efla bráðaþjónustu og sjúkraflutninga á landsbyggðinni og tel ég það einnig lykilatriði í bráðaþjónustu á Íslandi til framtíðar að efla sjúkraflutninga með þyrlum. Ég fagna því að hér er komin ríkisstjórn sem lætur verkin tala líka fyrir landsbyggðina.