Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Kannski tvennt sem ég myndi vilja nefna hérna undir þessum ágæta dagskrárlið. Það eru fréttir í dag frá Seðlabankanum um nýjar reglur til handa fjármálafyrirtækjum þegar kemur að því að meta greiðslubyrði lántakenda. Ég held að þessar nýju reglur ættu að verða þingheimi svolítið til umhugsunar um hver staðan raunverulega er í húsnæðismálum þjóðarinnar. Það er reynt hérna og ríkisstjórnin er að reyna að grípa fyrstu kaupendur, unga kaupendur sem öllum má ljóst vera að eiga mjög erfitt um vik að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Fasteignafélög reyna líka að koma til móts við þennan hóp með því að bjóða upp á fjölbreyttari kosti við fjármögnun á húsnæði og svo er sívaxandi félagslegt kerfi, sem ekki er hafið yfir gagnrýni, sem síðasta ríkisstjórn og þessi ríkisstjórn ætlar að byggja frekar undir. Síðan koma hins vegar nýjar reglur frá Seðlabankanum sem torvelda mjög möguleika fyrstu kaupenda til að fara inn á húsnæðismarkaðinn. Þetta er svona til umhugsunar, sérstaklega fyrir þá sem aðhyllast einhverja mikla samfélagsverkfræði í þessum efnum, hvort það sé raunverulega hægt, hvort Seðlabankinn sé bestur til þess fallinn að koma skikki á þennan markað, hvort menn þurfi ekki að leita annarra leiða en að þrengja um kosti á húsnæðismarkaði, á lánamarkaðnum með þeim hætti sem þarna er verið að gera og hvort ábyrgðin liggi ekki miklu frekar hjá sveitarfélögunum, sérstaklega Reykjavíkurborg, með úthlutun lóða og fjölgun lóða og byggða fyrir uppbyggingu á húsnæði sem yrði með auknu framboði til þess fallið að lækka húsnæðisverð.