Störf þingsins.
Frú forseti. Þing Evrópusambandsins samþykkti í lok nóvember skýrslu utanríkismálanefndar þingsins um stefnu sambandsins gagnvart norðurslóðum. Þið munið, ESB-batteríið sem er að grafa undan EES-samningnum og setti m.a. verndartolla þarna um daginn á Ísland og Noreg. Evrópusambandið hefur afhjúpað í þessari skýrslu að þetta hnignandi bandalag ásælist auðlindir Íslands, fiskimiðin okkar, orkuna og margt fleira. Það vekur nefnilega athygli að í þeirri skýrslu er m.a. rætt um mikilvægi náttúru og orkuauðlinda Íslands, Noregs og Grænlands fyrir Evrópusambandið og stofnanir þess raunar hvattar til þess að beita sér fyrir því að löndin þrjú gangi í sambandið. Þá segir einnig að Evrópusambandið hyggist taka með virkum hætti þátt í því með ríkisstjórn Íslands að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsóknarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína.
Forseti. Já, ég endurtek: Taka með virkum hætti þátt í því með ríkisstjórn Íslands. Þá vitum við það. Enginn fyrirvari er settur í textanum um mögulegan áhuga ríkisstjórnar. Hér hljóta þess vegna að hafa átt sér stað samtöl við utanríkisráðherra Viðreisnar um slíka yfirlýsingu. Að öðrum kosti hlýtur sá hinn sami utanríkisráðherra að gera athugasemdir við slíka áætlaða íhlutun af hálfu ESB. Hvaða samskipti liggja hér að baki við utanríkisráðherra Viðreisnar? Evrópusambandið hefur sem sé í hyggju að hafa afskipti af umræðunni hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og það í samstarfi við ríkisstjórn, pólitísk afskipti þar sem einungis verði lögð áhersla á kosti þess, að mati sambandsins, að Ísland verði hluti þess. Á mannamáli þýðir þetta að Evrópusambandið boðar afskipti af innanríkismálum Íslands. ESB boðar hér pólitískan áróður og það er aldrei eðlilegt og verður ekki liðið. Við líðum ekki erlenda íhlutun í innanríkismál og lýðræðislega ferla, hvorki hérlendis né utan landsteina. Eða er staðan þannig í hagsmunagæslu utanríkisráðherra Viðreisnar að ESB líðst allt?