Störf þingsins.
Frú forseti. Fjárlög ríkisstjórnarinnar eru nú til umræðu hér í þinginu. Þau eru sett fram af stjórnmálamönnum sem fóru af stað með stórkarlalegar yfirlýsingar um fyrirhugaðan árangur í efnahagsmálum og eru auðvitað vonbrigði fyrir þá sem trúðu á sleggju forsætisráðherra og ætluðu að reiða sig á að vextir myndu lækka hratt, og ekki síður þá sem stóðu í þeirri trú að stjórnmálamennirnir stæðu við loforð sín um að skattar yrðu ekki hækkaðir.
Frú forseti. Tvær setningar lýsa þessum fjárlögum best: Ríkisstjórninni er fyrirmunað að draga úr stjórnlausum útgjöldum ríkisins og eina úrræði ríkisstjórnarinnar er að hækka skatta á fólk og atvinnulíf í landinu. Miðflokkurinn hefur margoft bent á að stemma þurfi stigu við útgjöldum ríkisins og bent á að útgjöld til þriggja málaflokka séu stjórnlaus. Líkja má þeim útgjöldum við míglekt lagnakerfi. Þar streymir fé úr ríkissjóði og ríkisstjórnin fær ekki neitt við ráðið. Stjórnsýsla ríkisins vex stöðugt hraðar og vinstri ríkisstjórnin sem er við völd horfir aðgerðalaus á. Loftslagsmálin taka milljarðatugi árlega og enginn veit hvert þeir fjármunir fara eða hvaða gagn þeir gera. Hælisleitendamálin eru á sjálfstýringu og ráðamenn eru villtir í reglukerfi sem þau komast ekki út úr frekar en sauðkind föst í girðingarflækju. Þau ganga svo hart fram í skattlagningunni að ungt fólk í Viðreisn segist vera í samstarfi við Skattfylkinguna.
Frú forseti. Staðreyndin er sú að stjórnvöld geta ekki endalaust sótt meira fé í vasa almennings. Skattgreiðendur eru ekki óþrjótandi auðlind.