Störf þingsins.
Frú forseti. Nú ætla ég að ræða um meint samband fjármögnunar hryðjuverka og Félags eldri borgara á Siglufirði. Í ár tóku gildi ný ákvæði laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Þar er m.a. átt við sjálfseignarstofnanir í því augnamiði að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Ég, eins og allir aðrir, er mjög á móti fjármögnun hryðjuverka. Hins vegar er ljóst að eftirfylgni áðurnefndra ákvæða gagnvart frjálsum félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum er komin út í tóma vitleysu. Í þessu samhengi má nefna minningarsjóð Guðnýjar Stefáns, styrktarsjóð fyrir Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði, og Félag eldri borgara á Siglufirði. Sömu sögu má eflaust segja um fjölda annarra félagasamtaka um land allt. Vegna þess að það var misbrestur á upplýsingagjöf í samræmi við ákvæði áðurnefndra laga voru þessi félög sektuð um liðlega 400.000 kr. hvort. Bæði félögin hafa bætt úr upplýsingagjöf og fékk þá Félag eldri borgara á Siglufirði hluta af upphæðinni greiddan en aftur á móti er ekki búið að skila neinum fjármunum til Gullusjóðs þrátt fyrir að búið sé að bæta úr skráningunni. Málið hefur verið í vinnslu í nokkra mánuði og mín skilaboð héðan úr ræðustóli Alþingis eru að hraða þessari vinnu og að leitað verði allra leiða til þess að skila peningum.
Frú forseti. Það er mikill auður fólginn í frjálsum félagasamtökum. Það væri miklu nær að leiðbeina félagasamtökunum í gegnum nýtt regluverk í stað þess að senda þeim sektir í gegnum heimabanka. Í lokin er rétt að hafa í huga að þeir sem voru uppvísir að því að senda tugi milljóna króna til hryðjuverkasamtakanna Hamas voru ekki látnir sæta neinni ábyrgð eftir því sem ég veit best. Ef ætlunin er að koma í veg fyrir peningaþvætti væri miklu nær (Forseti hringir.) að horfa til rafmyntar og notkun hennar hér á landi heldur en að vera að gera frjálsum félagasamtökum erfitt fyrir og leggja á þau háar sektir.