Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Landspítalinn hefur nýlega tekið skýra afstöðu með íslenskunni og mig langar til að óska spítalanum til hamingju með þá mikilvægu ákvörðun. Hún skiptir máli. Hingað til lands hafa á fáum árum komið um 50.000 innflytjendur sem er há tala í okkar samfélagi, svo há að engin ein lausn dugir þegar við horfum á leiðir til að efla tungumálið okkar. Íslenskan þarf einfaldlega fjármagnaða innviðaáætlun rétt eins og samgönguáætlun ætti að vera. Tungumálið er vegakerfið okkar á milli. Það geymir menningu okkar og við vitum að án þess að fjárfesta hér nægjanlega þá munum við sjá meiri sundrung líkt og birtist okkur þegar í dag. Þess vegna erum við að leggja til viðbótarfjárframlag til þess að fjárfesta í kennslu, fjárfesta í gögnum til kennslu, fjárfesta í samtalsþjálfun, fjárfesta í því sömuleiðis hvernig við mælum árangur í íslensku. Við erum að leggja fram tæplega 200 millj. kr. umfram það sem kemur fram í meirihlutaáliti fjárlaganefndar og í heild eru þetta þá 486 millj. kr. Hér vil ég sérstaklega víkja að mikilvægi þess að við séum með mælitæki í því hvernig okkur miðar í að ná árangri í íslenskunni með auknum framlögum. Ein hugmynd er að við sjáum eins konar TOEFL íslenskunnar fæðast en prófið er nýtt þannig að í háskólum víða um heim þarf að taka prófið til að fá inngöngu. Það er líka nýtt í ýmsum löndum þegar horft er til veitingar dvalarleyfa, atvinnu o.s.frv. Með því að hafa skýrari umgjörð um mælikvarða þá getum við áttað okkur betur á því hvernig okkur miðar í þessu risastóra en samfélagslega mikilvæga verkefni sem fjárfesting í íslenskunni er.
Að lokum vil ég segja: (Forseti hringir.) Tökum plön Landspítalans til fyrirmyndar. Meira í þá átt skilar meiri samheldni fyrir íslenskt samfélag.