157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Við ræðum fjárlög ríkisins þessa dagana, fjárveitingar til margvíslegra málaflokka. Þá er vert að hafa í huga hvernig við förum með þessa peninga. Hvernig fara stofnanir landsins með þá fjármuni sem hið háa Alþingi veitir þeim umboð til að nota til ýmissa þarfra og góðra verka? Reynslan er ekki góð og Ríkisendurskoðun og starfsmenn hennar komu fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í morgun með eftirfylgniskýrslu vegna framkvæmda við Landeyjahöfn fyrir 20 árum sem áttu að kosta 3 milljarða en reyndust kosta 10 milljarða þegar uppi var staðið. Til viðbótar við það þá kostar sandlosun úr höfninni ekki 60 milljónir eins og ráðgert var heldur 500 millj. kr. á ári. Framkvæmdir sem eru opinberar hér á landi eru oft og tíðum settar fram af óskhyggjunni einni saman. Þetta mun ekki kosta nema — en kostar svo eitthvað allt annað þegar upp er staðið. Við þurfum að laga þetta. Ég lagði til á fundi nefndarinnar í morgun að Ríkisendurskoðun þyrfti líka að vera ríkisforskoðun. Það þyrfti að skoða þá þætti sem koma að áætlanagerð við opinberar framkvæmdir miklu betur í byrjun en ekki bara eftir á eins og gert er í dag. Þessu þarf að kippa í liðinn vegna þess að hérna fljóta hundruð milljarða úr sjóðum ríkissjóðs á tiltölulega stuttum tíma vegna þess að við skoðum ekki lyktir mála heldur setjum við fram opinbera framkvæmdaáætlun í allt of ríkum mæli á óskhyggjunni einni saman. Þetta þarf að laga vegna þess að við berum ábyrgð á þeim fjárveitingum sem héðan fara.