157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:25]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Það er sennilega fátt erfiðara foreldrum en að horfa upp á barnið sitt ánetjast áfengi eða öðrum vímuefnum. Málefni barna eru forgangsmál. Unnið hefur verið hörðum höndum að því að byggja upp úrræði, endurbæta Stuðla eftir hræðilegan bruna og setja á laggirnar nýtt úrræði. Úrræðin þurfa að vera fjölbreytt því börnin eru á mismunandi stað í neysluferli sínu. Sum eiga ekki langa neyslusögu að baki en önnur börn kunna að vera við dauðans dyr. Reynslan sýnir að nauðsynlegt er að til sé einhvers konar lokað úrræði fyrir börn sem eru langt leidd. Langtímameðferð er líklegri til árangurs en styttra inngrip. Að lokinni meðferð þarf að vera eftirfylgni, vinna þarf með foreldrum, börnin þurfa stuðning foreldra sinna og foreldrar þurfa stuðning fagfólks og fræðslu. Heimildir eru í barnaverndarlögum til að úrskurða barn í vistun án samþykkis barnsins, t.d. til 14 daga neyðarvistunar á Stuðlum og í úrræði Barna- og fjölskyldustofu með úrskurði á grundvelli 27. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Að öðru leyti er það ákvörðun foreldra og forráðamanna hvort barn er vistað til langs tíma í lokuðu sólarhringsúrræði, hvort sem barnið samþykkir það eða ekki. Eftir að barn hefur náð 15 ára aldri verður það sjálft aðili að sínum málum. Það þýðir að barnaverndarnefnd þarf að úrskurða gegn barninu sjálfu ef það samþykkir ekki að þiggja meðferð. Hægt er að úrskurða og taka neyðarákvörðun gegn barni frá 15–18 ára. Fram að 15 ára er unnt að taka slíkar ákvarðanir gagnvart foreldrum ef þau neita þjónustu fyrir barnið. Flest börn í meðferð dvelja þó á meðferðarstofnunum á grundvelli samþykkis.

Meðferðarúrræði á vegum ríkisins eru nokkur. Við höfum MST fjölkerfameðferð og það er grunnmeðferð í allt að 12 vikur sem veitt er í Blönduhlíð á Vogi, framhaldsmeðferð fyrir stúlkur í Bjargey á Laugalandi og sambærilegt úrræði fyrir drengi opnar brátt í Gunnarsholti. Í Blönduhlíð á Farsældartúni í Mosfellsbæ er rekið stuðningsheimili þar sem ungmenni geta dvalið eftir meðferð með stuðningi. Í þessum úrræðum eru laus pláss að frátaldri Bjargey og biðlisti er enginn.