157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Frú forseti. Í dag er stór dagur. Ný samgönguáætlun hefur verið kynnt sem felur m.a. í sér að kyrrstaða í jarðgangagerð á Íslandi verður rofin. Það er löngu tímabært. Sem Austfirðingur veit ég að fyrir ýmsa er þetta erfiður dagur. Fjarðarheiðargöng hafa verið efst á lista margra Austfirðinga og yrðu mikil samgöngubót en það verða Fjarðagöng um Mjóafjörð líka. Ég hvet fólk til að kynna sér nýja skýrslu Háskólans á Akureyri um þessa tvo gangakosti.

Frú forseti. Ég hef, sem sveitarstjórnarmaður í Fjarðabyggð, skrifað upp á sameiginlegar ályktanir sveitarfélaga á Austurlandi um að Fjarðarheiðargöng verði sett í forgang. Gildandi samgönguáætlun gerir ráð fyrir því að fyrst verði farið í Fjarðarheiðargöng og síðan beint í kjölfarið í Fjarðagöng, sem eru stórframkvæmdir sem munu sennilega kosta yfir 100 milljarða kr. samanlagt. Sem Austfirðingur hefði ég gjarnan viljað fá þennan óskalista uppfylltan en sé á sama tíma að það er ekki fjárhagslega forsvaranlegt. Ég get skilið að fyrri ríkisstjórn hafi ekki treyst sér til að standa við stóru orðin. Síðustu ár hefur líka verið dregið úr og ekki er gert ráð fyrir að hringtenging Austurlands myndi nást fyrr en komið væri vel inn á fimmta áratug aldarinnar. Austurland fær þessa hringtengingu u.þ.b. 350 daga á ári um leið og göngin verða tilbúin. Göngin rjúfa vetrareinangrun Seyðfirðinga og stytta líka akstursleið milli Norðfjarðar og Seyðisfjarðar um heila 64 km. Það er mun betri niðurstaða en áframhaldandi kyrrstaða í jarðgangamálum á Austurlandi og á Íslandi öllu.