157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

Störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Mér var verulega brugðið við fréttirnar í morgun. Farsæll skólameistari fjögurra framhaldsskóla fær einn ekki endurráðningu. Allir aðrir endurráðnir. Í janúar fær umræddur skólameistari, Ársæll Guðmundsson, símtal frá Ingu Sæland sem var í uppnámi. Málið sem tók hæstv. ráðherra úr jafnvægi var að barnabarn hennar fann ekki íþróttaskóna sína. Íþróttaskórnir voru týndir en þeir fundust reyndar nokkru síðar.

Samkvæmt heimildum Vísis minntist Inga á að hún hefði sín áhrif í samfélaginu sem ráðherra og vísaði m.a. til tengsla við lögreglu í því sambandi. Skólameistarinn átti að þóknast ráðherranum og það strax.

Sami skólameistari vogaði sér að tjá sig um hugmyndir menntamálaráðherra um nýtt stjórnsýslustig fyrir framhaldsskólann þar sem þjónustan verður færð frá skólunum inn í miðlægt kerfi. Var hann talsmaður skólameistara sem ályktuðu samhljóma um að hugmyndir ráðherrans væru vanhugsaðar. Hvaða vann viðkomandi skólameistari sér til saka? Hann vogaði sér að ræða málin af yfirvegun og skynsemi, annað en hvatvís og heimtufrekur ráðherra.

Skólameistarinn segir í pistli í morgun, með leyfi forseta: Það er ljóst að ákvörðun ráðherra um að víkja mér frá starfi sem skólameistara er ekki reist á faglegum forsendum heldur á pólitískum hvötum. — Ekkert nýtt hér. Þrátt fyrir áratugareynslu, óaðfinnanlegan starfsferil, rekstur innan fjárlaga og engar áminningar hefur ráðherrann kosið að hunsa bæði hefðir og fagmennsku. Þessi hegðun ráðherrans er ekki bara forkastanleg, hún er hættuleg. Þegiðu og hlýddu eða vertu úti. Skilaboð til starfsmanna ríkisins eru alveg skýr. Þetta kallast á venjulegri íslensku ógnarstjórn.